Frá Þingvöllum. Ljósm: MJ.
Frá Þingvöllum. Ljósm: MJ.
Fréttir | 18. júlí 2018 - kl. 09:11
Þingfundur á Þingvöllum

Í dag verður haldinn hátíðarfundur Alþingis á Þingvöllum en þann 18. júlí árið 1918 var samningur um fullveldi Íslands lokið með undirritun sambandslaganna sem tóku gildi 1. desember sama ár. Þingfundurinn er hugsaður eins og fundir á Þingvöllum hafa verið á hátíðar- og minningarstundum í sögu þjóðarinnar og er ætlunin að samþykkja ályktun sem full samstaða er um.

Áður en þingfundurinn hefst verður rætt við fólk úr ýmsum áttum um fullveldið og hvaða merkingu það hefur í huga þjóðarinnar. Ríkissjónvarpið mun senda beint út frá Þingvöllum og hefst dagskráin klukkan 12:45.

Alþingi hefur veg og vanda að undirbúningi og framkvæmd hátíðarfundarins.

Á dagskrá fundarins er eitt mál, þingsályktunartillaga formanna allra flokka á þingi um stofnun Barnamenningarsjóðs Íslands í tilefni af fullveldisafmælinu, auk þess sem hefja á smíði nýs hafrannsóknaskips. Að atkvæðagreiðslu lokinni munu Pia Kjærsgaard, forseti danska þingsins, og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, flytja ávörp. Tónlist verður á milli atriða. Gert er ráð fyrir að fundi verði slitið fyrir klukkan 16:00.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga