Fréttir | 14. september 2018 - kl. 09:12
Vetraráætlun Strætó - breytingar á leið 57

Vetraráætlun Strætó á landsbyggðinni tók gildi 9. september síðastliðinn og hafa verið gerðar breytingar á leiðakerfinu. Sérstök athygli er vakin á breytingum á leið 57 en samkvæmt henni verður ekki ekið frá Akureyri til Borgarness klukkan 16:20 á fimmtudögum og ekki frá Borgarnesi til Akureyrar klukkan 10:28 á fimmtudögum.

Upplýsingar um breytta áætlun á landsbyggðinni má finna hér.

Tímatöflur má nálgast hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga