Stuð á kótelettukvöldi
Stuð á kótelettukvöldi
Fréttir | 14. september 2018 - kl. 12:55
Kótelettufélagið fagnar fjögurra ára afmæli

Frjálsa kótelettufélagið í Austur-Húnavatnssýslu verður fjögurra ára 26. september næstkomandi. Félagið hefur haldið um 20 kótelettukvöld í Eyvindastofu síðastliðin ár við miklar vinsældir kótelettuunnenda. Eitt slíkt verður haldið laugardagskvöldið 29. september og hefst klukkan 19:30. Veislustjóri verður Vilhjálmur Egilsson, rektor háskólans á Bifröst en hann var á árum áður þingmaður kjördæmisins fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Fjöldasöngstjóri verður Þórhallur Bárðarson.

Nú þegar eru margir búnir að skrá sig á kótelettukvöldið og eru líkur á að uppselt verði eins og síðast og svo oft áður.

Kóteletturnar koma áfram frá SAH-Afurðum Blönduósi og Björn Þór og félagar hjá B&S nota svo sömu aðferðirnar sem húnvetnskar ömmur notuðu við undirbúning og eldamennsku hér á árum áður ásamt meðlæti.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga