Fréttir | 16. september 2018 - kl. 10:45
Auglýst eftir tilboðum í snjómokstur og hálkueyðingu

Blönduósbær auglýsir á vef sínum eftir tilboðum í snjómokstur og hálkueyðingu á Blönduósi næstu þrjá vetur eða 2018-2021. Um er að ræða snjómokstur á götum, plönum, gangstéttum og hálkuvörnum. Útboðsgögn fást afhent á bæjarskrifstofu Blönduósbæjar og er skilafrestur til 1. október næstkomandi klukkan 11:00 á bæjarskrifstofunni að Hnjúkabyggð 33 á Blönduósi.          

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga