Tilkynningar | 20. september 2018 - kl. 22:16
Árleg inflúensubólusetning haustið 2018
Tilkynning frá HSN

Árleg inflúensubólusetning haustið 2018. Bólusett verður á Heilsugæslustöðinni á Blönduósi

Þriðjudaginn 25/9 kl: 13:00-15:00

Miðvikudaginn 26/9 kl: 10:00-12:00

Þriðjudaginn 2/10 kl: 10:00-12:00

Bólusett verður á Heilsugæslustöðinni á Skagaströnd

Fimmtudaginn 27/9 kl: 9:00-11:00

Sérstaklega er mælt með að einstaklingar 60 ára og eldri, einstaklingar með langvinna sjúkdóma, heilbrigðisstarfsfólk og þungaðar konur láti bólusetja sig. Þessir hópar fá bóluefnið frítt en þurfa að greiða komugjald.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga