Frá Hvammstanga
Frá Hvammstanga
Fréttir | 21. september 2018 - kl. 14:35
Skipa starfshóp um samgöngumál

Sveitarstjórn Húnaþings vestra ætlar að skipa starfshóp um samgöngumál sem verður sveitarstjórn innan handar varðandi tillögugerð og forgangsröðun í vegamálum. Hópurinn á m.a. að kortleggja nauðsynlegar samgöngubætur í héraðinu og leita mögulegra leiða, í samráði við Vegagerðina og stjórnvöld, til þess að hraða framkvæmdum sem kostur er.

Í fundargerð sveitarstjórnar frá 13. september sl. segir að í starfshópum verði þrír fulltrúar, einn frá N-lista, einn frá B-lista auk sveitarstjóra og skuli hann starfa samkvæmt erindisbréfi. Skal hann hafa lokið störfum fyrir 30. apríl 2019.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga