Fréttir | 22. september 2018 - kl. 09:15
Auglýst eftir styrkbeiðnum

Á vef Blönduósbæjar er menningar-, æskulýðs- og íþróttasamtökum, sem hyggjast sækja um styrki til sveitarfélagsins vegna starfsemi sinnar fyrir árið 2019, bent á að senda þarf umsóknir um slíkt og er umsóknarfrestur til 5. október næstkomandi.

Lögð er áhersla á að við móttöku styrkja sé gerður samningur við sveitarfélagið þar sem samstarf er nánar skilgreint. Styrkþegum sem þegið hafa styrki á þessu ári er bent á að skila þarf inn stuttri greinargerð um ráðstöfun styrkja.

Nánari upplýsingar eru á umsóknareyðublaði sem finna má á vef Blönduósbæjar undir „eyðublöð/umsóknir um styrk úr bæjarsjóði.“

Sendar umsóknir skulu merktar:

Bæjarskrifstofan
b.t. bæjarstjóra
Hnjúkabyggð 33
540 Blönduós

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga