Guðrún og Harpa við vefstólinn. Ljósm: hunathing.is.
Guðrún og Harpa við vefstólinn. Ljósm: hunathing.is.
Fréttir | 09. október 2018 - kl. 15:56
Vefstóll settur upp í Nestúni

Tómstundastarf eldri borgara í Húnaþingi vestra fer fram í salnum í Nestúni í vetur, á mánudögum og fimmtudögum, klukkan 15-18. Stella Bára Guðbjörnsdóttir sér um tómstundastarfið. Nýbúið er að setja þar upp vefstól sem framvegis verður notaður í tómstundarstarfinu. Eldri borgarar eru velkomnir að mæta til að prófa að vefa. Gjarnan má koma með efni eins og gömul sængurver eða lök til Stellu Báru, þau verða notuð til að vefa til dæmis gólfmottur úr.

Á meðfylgjandi mynd sem fengin er af vef Húnaþings vestra er Guðrún V. Árnadóttir að rifja upp gömul handtök. Með henni er Harpa Lárusdóttir, vefari, sem fengin var til að kenna áhugasömum að vefa og sá um uppsetningu vefstólsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga