Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 10:08 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 10:08 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 10:08 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 10:08 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 10:08 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 10:08 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Kvenfélagið Vaka er 90 ára gamalt félag, sem við viljum blása nýju lífi í. Við höfum staðið fyrir ýmsum söfnunum til hjálpar í okkar nærumhverfi í gegnum árin og erum enn að. Síðustu ár höfum við safnað m.a fyrir blöðruskanna á sjúkrahúsið, stólum í Félagsheimilið, bókakaupum í bókasafnið í skólanum og spjaldtölvum fyrir börn með fötlun til að nota í leikskólanum.
Þá höfum við styrkt dýnukaup fyrir júdóiðkendur og eitt árið styrktum við skólann í dúkkuverkefninu þar sem unglingadeildinn fékk að reyna fyrir sér sem foreldrar ungbarns sem var í formi rafeindabrúðu. Núna síðast keyptum við uppþvottavél fyrir safnaðarheimili kirkjunnar.
Fjáröflun okkar hefur undanfarin misseri verið þorrablótið, en við höfum ákveðið að hætta því eins og kunnugt er.
Við ætlum að gera margar skemmtilegar breytingar á næsta starfsári. Við viljum kalla eftir aðstoð frá ykkar kæru konur sem búsettar eru á Blönduósi.
Við höfum áhuga á að færa kvennfélagið í nútíma horf og nota netið til fjáröflunar ásamt skemmtikvöldum og fyrirlestrum. Einnig væri gaman að fá einhverrn frægan leynigest í heimsókn og hafa opin aðgang gegn gjaldi.
En endilega kæru konur mætið á fund til okkar og hjálpið okkur að halda áfram að gera góða hluti fyrir litla samfélagið okkar á Blönduósi. Kvenfélagið fundar fyrsta mánudag í hverjum mánuði. Áhugasamar konur endilega hafið samband við Sigríði Eddý Jóhannsdóttur formann.
Stowarzyszenie kobiet Vaka jest 90 letnim stowarzyeniem które chcemy ozywic/któremu chcemy nadac nowe zycye. Przez lata organizowalismy rozne zbiórki do ksztatcenia i pomagania naszej gminie i z dniem dzisiejszym nadal to kontynuujemy. Ostatnie lata zebralismy wystarczajaca sume zeby kupic nowe sprzety potrzebne dla szpitala, nowe krzesta dla domu kultury, nowe ksiazki dla szkolnej biblioteki, tablety dla dzieci z potrzebami i dla dzieci niepelnoprawnych do latwiejszej nauki w naszym przedszkolu, Sfinansowalismy takze maty treningowe do trenowania judo i wspomoglismy szkole finansowo zeby umozliwic kupno lalek elektronicznych do nauki odpowiedzialnosci, opieli i bycia rodzicem. Nasza najnowsza zbiórka zapewnila nowa zmywarke naszej parafii.
Nasze wspomagania ostatnimi czasy opieraly sie na pomaganiu organizowania i finansowania Þorrablót, ale postanowilismy wstrzymac ta dzialalnosc.
Mamy zamiar wprowadzic duzo zmian w naszej gminie na nastepujacy rok, dlatego prosimy was kobiety mieszkajace w Blönduós o pomoc.
Jesesmy zainteresowane tym zeby nasze stowarzyszenie stalo sie bardziej nowoczesne, zeby uzywac technololgii i internetu do pomocy, organizowac fajne wydaezenia i robic wyklady do nauki i onformowania. Dobrym pomyslem bilo by tez sporowadzic slawna osobe w odwiedziny i miec otwarty dostep za oplata.
Zapraszamy kobiety na nasze spotkanie i pomoc w dalszym robieniu dobrych rzeczy dla naszej malej spolecznosci w Blönduós.
Spotkania Związku Kobiet Vaka odbywają się zawsze w pierwsze poniedziałki każdego miesiąca. Zaintersowane kobiety proszone są o kontakt z prezesem Sigríđur Eddý Jóhannsdóttir
Women social club Vaka is a 90 years old club that we want to bring back to new life. Through the years we have organized variety of fundraising to assist our community and we are still going strong. The past couple years we have raised money for the hospital to buy a bladder ultrasound, new chairs for the community center, new books for the school library, tablets to assist disabled children in the kindergarden, we have raised money to buy mattressers for those who are in Judo training, and one year we founded a life like doll project for the oldest classes in the school, where they got to try to be parents of robotic new borns. During our latest project we raised money to buy a dishwasher for the church.
Our foundraising for the past years has mainly been the annual traditional Þorrablót, but as some of you might know, we have decided to stop doing that.
We are going to make plenty of new and interesting changes this winter. We incourage you ladies that live in Blönduós to join us and help us continue our good work. We are interested in modernising the women social club and using the internet to fudraise money, also with entertainment nights and lectures. It would also be fun to have a famous secret guest visit and have an open access for a fee.
But we encourage you, dear women to show up for our meetings and help us continue to do good things for our small community. Meetings are held the first Monday of every month. Women intesested in joining the club please contact the clubs president Sigríður Eddý Jóhannesdóttir.
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 21:12
Gular veðurviðvaranir taka gildi á morgun allt frá Breiðafirði, um Vestfirði, allt Norðurland og austur á firði, vegna talsverðrar rigningar og asahláku á morgun og fram á aðfaranótt sunnudags. Á vef Veðurstofunnar segir að vegna ört hækkandi hitastigs megi búast við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikilvægt sé að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns.
|
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 20:56
Verkalýðsmálaráð Samfylkingarinnar boðar til málstofu um húsnæðis- og kjaramál, laugardaginn 20. apríl klukkan 09:00 í húsnæði stéttarfélagsins Samstöðu að Þverbraut 1 á Blönduósi. Frummælendur verða Þórarinn Sverrisson, formaður Öldunnar, stéttarfélags í Skagafirði, Ásgerður Pálsdóttir, fyrrverandi formaður Samstöðu og núverandi formaður Félags eldri borgara á Blönduósi og Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfjarða.
|
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 12:07
Sunnudaginn 28. apríl verða haldnir tónleikar í Blönduóskirkju þar sem kirkjukórinn mun syngja nokkur hugljúf vorlög undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner organista. Jafnframt mun Eyþór sýna snilli sína og leyfa okkur að heyra hvað orgelið hefur upp á að bjóða.
|
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:37
Húnaþing vestra og Leigufélagið Bríet hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu leiguíbúða í Húnaþingi vestra. Í yfirlýsingunni lýsa aðilar yfir vilja til samstarfs um uppbyggingu leiguíbúða í sveitarfélaginu auk þess sem Húnaþing vestra leggur til íbúðir í sinni eigu í gegnum svokölluð yfirtökuverkefni. Viljayfirlýsing þessi kemur til viðbótar samkomulagi sem undirritað var á dögunum milli innviðaráðuneytis, Húnaþings vestra og HMS um uppbyggingu allt að 50 íbúða til sölu og leigu á næstu fimm árum.
|
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:23
Árleg kökukeppni Undirheima, sem er félagsmiðstöð fyrir unglinga í Höfðaskóla, var haldin í gærkvöldi. Keppendur voru tólf talsins og voru tveir til þrír saman í hóp. Skreyta þurfti kökurnar á staðnum og höfðu keppendur 60 mínútur til þess að ljúka verkinu. Að því loknu valdi þriggja manna dómnefnd þrjú efstu sætin sem frumlegustu kökuna, besta bragðið og fallegustu kökuna. Að hennar sögn var valið ekki auðvelt. Sagt er frá þessu á vef Skagastrandar.
|
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 06:05
Lið Grunnskóla Húnaþings vestra er komið í úrslit Skólahreysti en keppt var í Laugardagshöll og sýnt beint á RÚV. Liðið stóð sig frábærlega og sigraði riðilinn sinn. Úrslitakeppnin fer fram 25. maí næstkomandi. Lið Grunnskóla Húnaþings vestra skipa þau Friðrik Hrafn Hannesson, Saga Ísey Þorsteinsdóttir, Victor Þór Sigurbjörnsson, Nóa Sophia Ásgeirsdóttir, Indriði Rökkvi Ragnarsson og Victoría Elma Vignisdóttir.
|
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 05:59
Viðbragðsaðilar á Norðurlandi vestra stefna á að halda hópslysaæfingu 11. maí næstkomandi. Hluti hópsins hittist á Blönduósi í fyrradag og æfðu viðbragð við flugslysi og rútuslysi, þar sem settar voru upp tvær borðæfingar. Æfingarnar eru undirbúningur fyrir stóru æfinguna í maí og er samvinna lykilinn að góðri útkomu, eins og segir á facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi vestra. „Samhæft viðbragð skilar betri þjónustu til borgaranna.“
|
Fréttir | 17. apríl 2024 - kl. 06:10
Sigríður Ỏlafsdóttir úr Húnaþingi vestra var endurkjörin formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi en ráðið hélt aðalfund sinn á Laugum í Sælingsdal um síðustu helgi. Á fundinum var samþykkt stjórnmálaályktun þar sem meðal annars er komið inn á að atvinnufrelsi og eignarréttur sé órjúfanlegur hluti frjáls samfélags og forsenda þess að hægt sé að tryggja jöfn tækifæri í landinu.
|
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 14:48
Tilkynning frá Háskólanum á Hólum
Háskólinn á Hólum hlýtur Byggðagleraugu Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fyrir framsækið og metnaðarfullt starf. Námið við háskólann er sértækt að því leyti að það byggir á traustum grunni fyrir mikilvægar framtíðar atvinnugreinar í samfélaginu þar á meðal íslenska hestinn, ferðaþjónustu í dreifbýli og fiskeldi, en skólinn hefur dregið til sín nemendur víðsvegar að úr heiminum. Í Háskólanum á Hólum er öflugt háskólastarf sem er í stöðugum vexti og nýsköpun.
|
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:32
Sveitarfélagið Skagaströnd heldur íbúafund í Fellsborg miðvikudaginn 17. apríl klukkan 17:00. Á dagskrá eru fjölmörg mál eins og staðan á hafnarframkvæmdum, breyting á námsstofu, sorpmál, vinnuskóli, gjaldskrár og kjarasamningar.
|
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:27
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir sóknarprestur í Skagafjarðarprestakalli hefur verið skipuð prófastur í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi. Hún tekur við af sr. Döllu Þórðardóttur á Miklabæ, sem lét af störfum 1. desember síðastliðinn. Frá þeim tíma hefur sr. Gísli Gunnarsson vígslubiskup á Hólum gegnt prófstsstörfum.
|
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:17
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra
Aðalfundur Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra verður haldinn miðvikudaginn 17. apríl 2024 klukkan 14:00 í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, skýrsla og tillögur ferðanefndar og margt fleira. Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri verður gestur fundarins. Kaffiveitingar að hætti kaffinefndar. Nýir félagar ávallt velkomnir.
|
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:13
Frá stjórn
Aðalfundur Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi verður haldinn í fundarsal HSB föstudaginn 26. apríl næstkomandi klukkan 16.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
|
Fréttir | 15. apríl 2024 - kl. 09:43
Knattspyrnulið Kormáks Hvatar mætti í Fífuna í Kópavogi í gær og spilaði gegn Augnabliki í 2. umferð Mjólkurbikarsins. Leikurinn fór fjörlega af stað og vel fyrir gestina því Papa Diounkou Tecagne skoraði fyrsta mark leiksins á 9. mínútu. Heimamenn voru ekki lengi að svara með marki á 13. mínútu og öðru marki á 31. mínútu. Staðan í hálfleik 2-1 fyrir Augnablik. Í seinni hálfleik voru skoruð fjögur mörk, þrjú af heimamönnum og einn af gestunum, en það gerði Kristinn Bjarni Andrason. Leikurinn endaði því 5-2 fyrir Augnablik.
|
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |