Fréttir | 19. október 2018 - kl. 13:46
Körfuboltanámskeið á mánudaginn

Körfuboltaskóli Norðurlands vestra verður með körfuboltanámskeið á Blönduósi mánudaginn 22. október frá klukkan 9-12. Vetrarfrí er í mörgum grunnskólum landsins þennan dag og þar á meðal í Blönduskóla. Forsvarsmenn KNV segja að mikill áhugi hafi verið á námskeiðum skólans. Ákveðið hafi verið að láta slag standa og prófa hvort nemendur myndu hafa áhuga á mæta á körfuboltanámskeið á mánudaginn í staðinn fyrir að verja deginum heima.

Körfuboltanámskeiðið er fyrir 8-16 ára stelpur og stráka og fer fram í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi.   

Hægt er að skrá sig á námskeiðið hér.

Fyrir spurningar eða athugasemdir er hægt að hafið samband í hfmkarfa@gmail.com eða í síma 863-9636.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga