Fréttir | 19. október 2018 - kl. 14:05
Brýn þröf er á Listaskóla unga fólksins

Eitt af áhersluverkefnum Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra árið 2016 var að kanna grundvöll að sumarskóla í listum og skapandi greinum fyrir börn og unglinga á Norðurlandi vestra. Þörfin var metin með kynningum og könnunum í skólum sveitarfélagsins frá maí til september árið 2017 í sjö af níu skólum á Norðurlandi vestra, þarf af var einn framhaldsskóli.

Kynningarnar voru sniðnar að nemendum á aldrinum 10-16 ára og var tilgangurinn að meta áhuga nemenda fyrir hverri og einni af fimm mögulegum greinum; sjónlistum, skapandi skrifum, tónlist, dansi og leiklist. Þrjár mismunandi kynningar fóru fram, ein fyrir nemendur, önnur fyrir foreldra og sú þriðja fyrir kennara, til þess að fá sem skýrasta mynd af áhuganum fyrir Listaskóla unga fólksins.

Niðurstöðurnar sýna að brýn þörf er á Listaskóla unga fólksins á Norðurlandi vestra. Áhugi var fyrir öllum fimm greinunum og þá sérstaklega fyrir sjónlistum og leiklist. Til þess að hrinda skólanum í framkvæmd er mælst til þess að byrja á tilraunaverkefni í tveimur grunnskólum á Norðurlandi vestra. Tilraunin myndi bjóða upp á styttri smiðjur í sjónlistum og leiklist með það að markmiði að láta reyna bæði á hagnýtar og kennslufræðilegar hliðar verkefnisins. 

Sagt er frá þessu á vef SSNV. Nálgast má skýrsluna hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga