Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 21:47 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 21:47 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 21:47 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 21:47 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 21:47 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 21:47 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Er þráir mín sál að syngja
og svífa frá villtum glaum
þá ljóðhörpu læt ég klingja
og leiðist í sæludraum.
En ljóðstafi lítt ég þekki
- með listhreim kveð ég ekki -
svo öll virðast efnin naum. BGB
Björn organisti á Hvammstanga var gott skáld og átti til skálda að telja því Ólöf frá Hlöðum var móðursystir hans. Ragnar organisti og söngstjóri í Reykjavík var sonur Björns. Skáldið hafði næmt auga fyrir frelsi. Hann orti um Litla-Rauð við hesthúsdyrnar:
Frekt mig langar frelsið í
flýja stranga hnefann
örðug gangan er mér því
inn í fangaklefann. BG
Björn flutti til þorpsins þegar hann var kominn á miðjan aldur og lagði stund á smíðar. Hér fellir hann fernar mannlýsingar í snjalla vísu:
Einn vill pæla allt í flag
annar þráir tinda
þriðji frelsi og friðarhag
fjórði hlekki að binda. BGB
Tómas Gunnar frá Hrútatungu sendi nýlega frá sér sögu sína, Genginn ævivegur, vel skrifuð og merk heimild um samfélagið í Staðarhreppi og bóndann og vaktmanninn Gunnar er bjó við rætur heiðarinnar og átti marga ferð yfir hana til að moka fönn af vegi eða bjarga ferðamönnum.
Austast í þessari sömu sýslu vatna og víðáttu óx upp annar rithöfundur, Hólmfríður Kolbrún var fædd 1939 á Æsustöðum, en flutti ásamt foreldrum og eldri systkinum suður í Kópavog þegar Gunnar Árnason, faðir hennar fékk þar stöðu 1952, varð fyrsti presturinn í Kópavogi, hafði annexíu í Bústaðahverfi en kirkjulausar voru báðar sóknirnar. Frá þessu segir HKG mætavel í nýrri bók sinni, Hjá grassins rót, en hlýjustu kaflana fá þó æskustöðvar hennar norður í Langadal og fólkið sem þar bjó og býr sumt enn. Sr. Jón Þórðarson á Auðkúlu, langafi HKG, var traustur samstarfsmaður Jóns föðurbróður síns Árnasonar, safnaði þjóðsögum og átti í miklum bréfaskiptum við hann. Hólmfríður auðgar bók sína með völdum köflum, setningum eða vísum ýmissa höfunda. Heiti bókarinnar sækir hún til Jóns Helgasonar frá Rauðsgili.
Enn ég um Fellaflóann geng
finn eins og titring í gömlum streng
hugann grunar hjá grassins rót
gamalt spor eftir lítinn fót.
Sjálf segir HKG:
„Stundum hef ég fengið að heyra hjá mínum nánustu að ég vaði úr einu í annað en ég hef ekki fundið þannig til. Ég hef fremur verið hrædd um að hugmyndirnar gleymdust og fyndust aldrei aftur -- eins og oft reyndist rétt. Þess vegna yrði að grípa þær á flugi.“
Húnvetningar eru ríkir að eignast tvo nýja rithöfunda á einu hausti og ekki mörg ár síðan Erlendur frá Geithóli sendi ævisögu sína til lesenda. Sú bók heitir Að kvöldi dags, vel skrifuð og sett upp eins og nýju ævisögurnar en lýsir ólíkum heimi og kjörum. Er þó Erlendur sé ekki nema 10 árum eldri en Hólmfríður! Stökuspjallinu lýkur með litlu ljóði úr bók Hólmfríðar. Hún yrkir það um Fölva, hest sem fjölskylda HKG eignaðist norðan úr Skagafirði. En hann fékk sama nafn og gæðingur móður hennar, Sigríðar á Æsustöðum hafði haft áratugum fyrr:
Fölvavísur
Vorið nálgast hlýtt og hýrt
hölda gleður alla.
Hestinn bleika hef ég skírt
hann skal Fölva kalla.
Annar Fölvi eitt sinn var
ei mun honum gleyma.
Hann mig unga á baki bar
um bláa dalinn heima.
Unga Fölva og einnig mín
óræð forlög bíða
en víst mun ljúft þá vorsól skín
viljugum fák að ríða.
Þegar loks í ferð ég fer
ferð sem allra bíður
sækir mig þá vaskur ver
sem vekring bleikum ríður. HKG
Heimildir og ítarefni:
Björn G. Björnsson organisti og smiður: http://bragi.info/hunafloi/hofundur.php?U=b0&ID=17475
Kirkjan í Kirkjuhvammi: https://www.nat.is/Kirkjur/Kirkjur_NL_kirkjuhvammskirkja.htm
Prestatal Auðkúlu, Blöndudalshólum og Bergsstöðum: http://stikill.123.is/blog/2010/05/16/454453/
Sr. Gunnar segir af högum sínum að loknu guðfræðiprófi og fyrstu árunum á akrinum - meðal Húnvetninga: http://stikill.123.is/blog/2008/11/14/318222/
Jónas Tryggvason skrifar sr. Gunnari vorið 1955: http://stikill.123.is/blog/2009/01/13/339239/
Ingi Heiðmar Jónsson
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 12:07
Sunnudaginn 28. apríl verða haldnir tónleikar í Blönduóskirkju þar sem kirkjukórinn mun syngja nokkur hugljúf vorlög undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner organista. Jafnframt mun Eyþór sýna snilli sína og leyfa okkur að heyra hvað orgelið hefur upp á að bjóða.
|
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:37
Húnaþing vestra og Leigufélagið Bríet hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu leiguíbúða í Húnaþingi vestra. Í yfirlýsingunni lýsa aðilar yfir vilja til samstarfs um uppbyggingu leiguíbúða í sveitarfélaginu auk þess sem Húnaþing vestra leggur til íbúðir í sinni eigu í gegnum svokölluð yfirtökuverkefni. Viljayfirlýsing þessi kemur til viðbótar samkomulagi sem undirritað var á dögunum milli innviðaráðuneytis, Húnaþings vestra og HMS um uppbyggingu allt að 50 íbúða til sölu og leigu á næstu fimm árum.
|
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:23
Árleg kökukeppni Undirheima, sem er félagsmiðstöð fyrir unglinga í Höfðaskóla, var haldin í gærkvöldi. Keppendur voru tólf talsins og voru tveir til þrír saman í hóp. Skreyta þurfti kökurnar á staðnum og höfðu keppendur 60 mínútur til þess að ljúka verkinu. Að því loknu valdi þriggja manna dómnefnd þrjú efstu sætin sem frumlegustu kökuna, besta bragðið og fallegustu kökuna. Að hennar sögn var valið ekki auðvelt. Sagt er frá þessu á vef Skagastrandar.
|
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 06:05
Lið Grunnskóla Húnaþings vestra er komið í úrslit Skólahreysti en keppt var í Laugardagshöll og sýnt beint á RÚV. Liðið stóð sig frábærlega og sigraði riðilinn sinn. Úrslitakeppnin fer fram 25. maí næstkomandi. Lið Grunnskóla Húnaþings vestra skipa þau Friðrik Hrafn Hannesson, Saga Ísey Þorsteinsdóttir, Victor Þór Sigurbjörnsson, Nóa Sophia Ásgeirsdóttir, Indriði Rökkvi Ragnarsson og Victoría Elma Vignisdóttir.
|
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 05:59
Viðbragðsaðilar á Norðurlandi vestra stefna á að halda hópslysaæfingu 11. maí næstkomandi. Hluti hópsins hittist á Blönduósi í fyrradag og æfðu viðbragð við flugslysi og rútuslysi, þar sem settar voru upp tvær borðæfingar. Æfingarnar eru undirbúningur fyrir stóru æfinguna í maí og er samvinna lykilinn að góðri útkomu, eins og segir á facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi vestra. „Samhæft viðbragð skilar betri þjónustu til borgaranna.“
|
Fréttir | 17. apríl 2024 - kl. 06:10
Sigríður Ỏlafsdóttir úr Húnaþingi vestra var endurkjörin formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi en ráðið hélt aðalfund sinn á Laugum í Sælingsdal um síðustu helgi. Á fundinum var samþykkt stjórnmálaályktun þar sem meðal annars er komið inn á að atvinnufrelsi og eignarréttur sé órjúfanlegur hluti frjáls samfélags og forsenda þess að hægt sé að tryggja jöfn tækifæri í landinu.
|
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 14:48
Tilkynning frá Háskólanum á Hólum
Háskólinn á Hólum hlýtur Byggðagleraugu Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fyrir framsækið og metnaðarfullt starf. Námið við háskólann er sértækt að því leyti að það byggir á traustum grunni fyrir mikilvægar framtíðar atvinnugreinar í samfélaginu þar á meðal íslenska hestinn, ferðaþjónustu í dreifbýli og fiskeldi, en skólinn hefur dregið til sín nemendur víðsvegar að úr heiminum. Í Háskólanum á Hólum er öflugt háskólastarf sem er í stöðugum vexti og nýsköpun.
|
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:32
Sveitarfélagið Skagaströnd heldur íbúafund í Fellsborg miðvikudaginn 17. apríl klukkan 17:00. Á dagskrá eru fjölmörg mál eins og staðan á hafnarframkvæmdum, breyting á námsstofu, sorpmál, vinnuskóli, gjaldskrár og kjarasamningar.
|
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:27
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir sóknarprestur í Skagafjarðarprestakalli hefur verið skipuð prófastur í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi. Hún tekur við af sr. Döllu Þórðardóttur á Miklabæ, sem lét af störfum 1. desember síðastliðinn. Frá þeim tíma hefur sr. Gísli Gunnarsson vígslubiskup á Hólum gegnt prófstsstörfum.
|
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:17
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra
Aðalfundur Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra verður haldinn miðvikudaginn 17. apríl 2024 klukkan 14:00 í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, skýrsla og tillögur ferðanefndar og margt fleira. Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri verður gestur fundarins. Kaffiveitingar að hætti kaffinefndar. Nýir félagar ávallt velkomnir.
|
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:13
Frá stjórn
Aðalfundur Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi verður haldinn í fundarsal HSB föstudaginn 26. apríl næstkomandi klukkan 16.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
|
Fréttir | 15. apríl 2024 - kl. 09:43
Knattspyrnulið Kormáks Hvatar mætti í Fífuna í Kópavogi í gær og spilaði gegn Augnabliki í 2. umferð Mjólkurbikarsins. Leikurinn fór fjörlega af stað og vel fyrir gestina því Papa Diounkou Tecagne skoraði fyrsta mark leiksins á 9. mínútu. Heimamenn voru ekki lengi að svara með marki á 13. mínútu og öðru marki á 31. mínútu. Staðan í hálfleik 2-1 fyrir Augnablik. Í seinni hálfleik voru skoruð fjögur mörk, þrjú af heimamönnum og einn af gestunum, en það gerði Kristinn Bjarni Andrason. Leikurinn endaði því 5-2 fyrir Augnablik.
|
Pistlar | 14. apríl 2024 - kl. 17:16
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Úr dagbók Jónasar Tryggvasonar í Finnstungu fyrir 79 árum: Sun. 8. apríl 1945: Bar lítið til tíðinda. Skagfirska skáldkonan Ỏlína Jónasdóttir er sextug í dag. Vísur hennar eru löngu landfleygar og á hvers manns vörum, þess er yndi hefur af snilld fagurrar stöku. Ég hef ekki, svo ég muni til, heyrt vísu eftir Ỏlínu, sem ekki hafi verið vel gerð, en meiri eða minni snilldarbragur er á þeim flestum ...
|
Pistlar | 13. apríl 2024 - kl. 16:15
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
Þegar við hugsum um leiðir til að bæta heilsu samfélagsins þá hugsum við ekki alltaf um aðgengi að listum. En þegar við hugsum um það þá eru listir ein tegund tilfinningatjáningar. Hvort sem það er hamingja eða örvænting þá er það nauðsynlegt að hafa útrás til að nálgast tilfinningar á heilbrigðan og öruggan hátt. Samfélög sem styðja við listir, koma saman til að skapa list saman, hafa sýnt sig að vera tengdari
|
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |