Fréttir | 08. nóvember 2018 - kl. 12:00
Versnandi afkoma sjávarútvegsfélaga í Norðvesturkjördæmi

Tekjur í sjávarútvegi í Norðvesturkjördæmi drógust saman um 19% milli áranna 2016 og 2017, framlegð lækkaði um 38% og hagnaður lækkaði um 80%, samkvæmt samantekt Deloitte um rekstur sjávarútvegsfélaga í Norðvesturkjördæmi. Sjávarútvegur er víða í kjördæminu undirstöðuatvinnugrein og því hefur vöxtur og viðgangur greinarinnar víðtæk áhrif á flest öll sveitarfélög á svæðinu.

Í samantektinni kemur fram að staða sjávarútvegs versnaði mjög á milli áranna 2016 og 2017 en hún náði til stærstu fyrirtækja í bolfiskvinnslu í kjördæminu eða þeirra fyrirtækja sem greiddu 81% af veiðigjöldum á svæðinu. Niðurstöðurnar sýna svart á hvítu að fyrirtækin höfðu ekki bolmagn til að greiða háar upphæðir í veiðigjöld, en alls voru þau að greiða 2,5 milljarða króna, álíka mikið og allar tekjur sveitarfélags með um 2.500 íbúa. Samantektin sýnir jafnframt fram á að þau fyrirtæki sem stunduðu botnfiskveiðar komu mun verr út hvað varðar veiðigjöldin, en fyrirtæki sem eru í veiðum á uppsjávarfiski.

Samantekt Deloitte var að beiðni Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV), Fjórðungssambands Vestfirðinga (FV) og Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV). Hún er unnin í tengslum við áform stjórnvalda um veiðigjöld. Í henni kemur skýrt fram versnandi afkoma sjávarútvegsfélaga á svæðinu.

Úttekt Deloitte á rekstri sjávarútvegs í Norðvesturkjördæmi

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga