Fréttir | 14. nóvember 2018 - kl. 15:29
Árshátíð Grunnskóla Húnaþings vestra

Árshátíð Grunnskóla Húnaþings vestra fer fram í Félagsheimilinu á Hvammstanga á föstudaginn klukkan 20 og stendur hún til miðnættis. Á dagskrá eru skemmtiatrið og dansleikur fyrir alla fjölskylduna. Generalprufa verður klukkan 10 á föstudagsmorgun og þar sjá nemendur öll atriði.

Tíundi bekkur verður með sjoppu og kaffisölu um kvöldið. Sjoppan verður opnuð klukkan 19:30 og er opin þar til sýning hefst. Kaffisala verður á neðri hæð í Félagsheimilinu og verður opnuð að skemmtiatriðum loknum og kostar kaffi og meðlæti kr. 1.000.

Miðaverð á árshátíðina:
Skemmtiatriði og dansleikur kr. 2.000.

Kaffiveitingar og dansleikur fyrir nemendur skólans  kr. 1.000.

Nemendur drekka í matsal meðan á sýningu stendur. 

Aðgangseyrir á generalprufu fyrir aðra en nemendur er kr. 1.000, miðar seldir við inngang.

Athugið að ekki er hægt að greiða með kortum. Hægt er að leggja inn á reikning nemendafélagsins (0159-06-60055 / kt. 540611-0680) og framvísa kvittun við inngagn eða greiða með reiðufé við inngang.

Ef fleiri en tveir nemendur eru frá sama heimili, er frítt frá og með þriðja barni. Börn undir grunnskólaaldri fá frítt inn á árshátíðina. Miðar seldir við inngang - enginn posi

Allur ágóði af skemmtuninni rennur í ferðasjóð nemenda.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga