Fréttir | 20. nóvember 2018 - kl. 09:14
Ný borhola olli raski á afhendingu heitavatns

Byrjað var á framkvæmd á borun vinnsluholu RS15 á Reykjum í Hrútafirði síðastliðinn fimmtudag en það er jarðborinn Tröllil hjá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða sem borar holuna. Borun gekk vel og fljótlega var komið niður á mjög heitt vatn, að því er fram kemur í fundargerð Veituráðs Húnaþings vestra frá því í gær. Þegar farið var að undirbúa að rýma út fyrir fóðringu kom í ljós að tenging var við holu RS-14 og fór nýja holan að stela vatni frá veitunni sem olli raski á afhendingu til notenda.

Í fundargerð Veituráðs segir að til að lágmarka áhættu hafi verið ákveðið að fara í hjólakrónuborun með vatni þegar búið væri að fóðra holuna. Fylgst verði vel með vinnsluholu RS-14 þegar byrjað verður að bora og ef borunin hefur áhrif á hana verði hætt strax og staðan metin upp á nýtt.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga