Fréttir | 20. nóvember 2018 - kl. 15:17
Jóladagskrá Bókasafnsins

Héraðsbókasafnið á Blönduósi hefur auglýst jóladagskrá safnsins á aðventunni. Mánudaginn 26. nóvember verður bókakynning klukkan 17. Sigurður Pétursson kynnir bókaútgáfuna Merkjalæk og þær bækur sem komið hafa út á vegum hennar. Heitt verður á könnunni og allir eru velkomnir. Mánudaginn 10. desember verður bókabíó klukkan 17. Þá verður myndum varpað á vegg og Kolbrún Zophoníasdóttir les úr bókinni „Rummungur ræningi“ eftir Ottfried Preussler.

Miðvikudaginn 12. desember fer fram jólaföndur milli klukkan 16 og 18. Hægt verður að fá föndurefni á staðnum. Allir eru velkomnir í jólakósý þar sem verður jólatónlist, jólatré, jólaföndur og piparkökur.

Héraðsbókasafnið á Blönduósi er opið mánudaga, miðvikudaga, fimmtudaga kl. 14:00 – 18:00 og þriðjudaga kl. 10:00 – 16:00.

Hægt er að fylgjast með safninu á Facebook: Héraðsbókasafn A-Hún.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga