Ljósm: blonduos.is.
Ljósm: blonduos.is.
Fréttir | 05. desember 2018 - kl. 13:59
Saman gegn ofbeldi

Átaksverkefnið Saman gegn ofbeldi hófst í gær en það er samstarfsverkefni félagsþjónustunnar í Austur-Húnavatnssýslu, Húnaþingi vestra og Skagafirði og Lögreglunnar á Norðurlandi vestra. Markmið er að auka þekkingarmiðlun og bæta verklag til að taka á heimilisofbeldismálum, veita þolendum og gerendum betri þjónustu og vernda börn sem búa við heimilisofbeldi.

Í tilkynningu segir að „það að lögreglan og félagsmálayfirvöld á Norðurlandi vestra taki höndum saman gefur skýr skilaboð út í samfélagið um að ofbeldi á heimilum sé ekki liðið og gerir okkur sterkari í að takast á við þetta verkefni þannig að það skili meiri árangri.“

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga