Fréttir | 07. desember 2018 - kl. 07:40
Jólatónleikar Lóuþræla

Karlakórinn Lóuþrælar heldur jólatónleika í Barnaskólanum á Borðeyri þriðjudaginn 11. desember klukkan 20:30 og í Félagsheimilinu Hvammstanga miðvikudaginn 12. desember klukkan 20:30. Stjórnandi kórsins er Ólafur Rúnarsson. Á tónleikunum munu einnig syngja nemendur 6. og 7. bekkjar Grunnskóla Húnaþings vestra við undirleik Aðalsteins Grétars Guðmundssonar.

Heitt súkkulaði og smákökur að loknum tónleikum. Enginn aðgangseyrir.

Tónleikarnir eru styrktir af Landsbankanum á Hvammstanga og Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga