Fréttir | 09. desember 2018 - kl. 20:19
Einar töframaður heimsækir A-Hún.

Einar Mikael töframaður er á leið norður í Austur-Húnavatnssýslu og verður með nýja jólasýningu á Blönduósi og Skagaströnd á morgun, mánudaginn 10. desember. Sýningin í Félagsheimilinu á Blönduósi hefst klukkan 17 og sýningin í Fellsborg á Skagaströnd hefst klukkan 20. Einar Mikael töframaður hefur notið ómældra vinsælda meðal yngstu kynslóðarinnar síðustu ár.

Á síðustu sjö árum hefur Einar Mikael ferðast víða um heim og er nýlega kominn úr sýningarferð um Kína sem sló rækilega í gegn. Jólasýning Einars Mikaels er ný sýning sem er troðfull af ótrúlegum töfrabrögðum og mögnuðum sjónhverfingum. Einar leyfir áhorfendum að taka virkan þátt í sýningunni og velur hann oftar en ekki unga áhorfendur úr sal til að aðstoða hann í töfrabrögðunum. Eftir sýningarnar er gestum boðið upp á myndatöku með Einari og hægt er að kaupa ýmsan töfravarning, galdrabækur og töfradót.

Miðaverð er 1.500 krónur og miðar seldir við innganginn.

Hér er hægt að sjá myndbrot frá sýningu með Einari Mikael
https://www.youtube.com/watch?v=EZoOaK6S_ik

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga