Holur á Vatnsnesvegi.
Holur á Vatnsnesvegi.
Fréttir | 13. desember 2018 - kl. 11:21
Vilja heimakennslu vegna slæms ástands Vatnsnesvegar

Foreldrar barna í Grunnskóla Húnaþings vestra hafa miklar áhyggjur af líðan og ferðatíma barna sinna vegna ástands vegar 711 um Vatnsnes. Ferðatími skólabíls hefur lengst um a.m.k. 20 mínútur á dag vegna ástands vegarins og er orðinn 136 mínútur á dag. Foreldrar frá Þorgrímsstöðum og Saurbæ á Vatnsnesi hafa óskað eftir greiðslu vegna heimakennslu barna vegna slæms ástands vegarins. Sigurður Þór Ágústsson, skólastjóri Grunnskóla Húnaþings vestra, lagði fram erindið á fundi byggðaráðs Húnaþings í vikunni.

Í því kemur fram að fram að þrátt fyrir að skólabíllinn sé vel útbúin bifreið og uppfylli allar þær kröfur sem gerðar eru til skólabifreiða kvarti nemendur undan ógleði og hávaða þegar ekið sé í holu eftir holu.  Hávaðinn sem myndast í bílnum við þennan akstur hefur mælst allt að 109 Db og á löngum kafla reyndist meðaltal hljóðstyrks 98 Db. Hættumörk vegna hávaða er 95 Db.

Í fundargerð byggðarráðs segir að ráðið deili áhyggjum foreldra af líðan og velferð barnanna sem og lengingu ferðatíma skólabíls. Ráðið telur sig ekki geta samþykkt erindið um greiðslu til foreldra vegna heimakennslu með vísan í reglugerð 531/2009 um heimakennslu á grunnskólastigi. Byggðarráð mun halda áfram að þrýsta á stjórnvöld um úrbætur og breytta forgangsröðun í vegamálum með áherslu á skólaakstursleiðir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga