Dóra Sigurðardóttir. Ljósm: FB/Listakot Dóru.
Dóra Sigurðardóttir. Ljósm: FB/Listakot Dóru.
Fréttir | 16. desember 2018 - kl. 08:39
Dóra í Vatnsdalshólum opnar vinnustofu sína

Dóra Sigurðardóttir í Vatnsdalshólum opnar vinnustofu sína 22. desember klukkan 14 og verður hún opin fram eftir degi. Hún býður gestum að koma og þiggja kakó og smákökur og skoða aðstöðuna. Í Listakoti Dóru verður starfrækt innrömmunarþjónusta og vinnustofa listamannsins Dóru en hluti af rýminu verður notaður til þess að taka á móti gestum. Einnig verður aðstaða fyrir gestakennara.

Dóra hefur unnið að list sinni undanfarin ár undir listanafninu Listakot Dóru. Hún málar málverk, kerti, kort og fleira. Ýmislegt fleira kemur frá henni á nýja árinu sem nú er á þróunarstigi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga