Fréttir | 16. desember 2018 - kl. 21:40
Mikil ísing á vegum

Fimm umferðaróhöpp urðu í umdæmi Lögreglunnar á Norðurlandi vesta um helgina. Á Facebook síðu hennar segir að aðallega hafi óhöppin verið bílveltur og ein aftanákeyrsla. Sem betur fer hafi engin alvarleg slys orðið á fólki. Lögreglan vill minna vegfarendur á að fara sérstaklega varlega en mikil ísing er á vegum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga