Fréttir | 09. janúar 2019 - kl. 20:13
Góður árangur náðist í lækkun umferðarhraða og fækkun umferðarslysa

Mikill áhersla var lögð á umferðaröryggismál hjá Lögreglunni á Norðurlandi vestra á síðasta ári. Sérstök umferðardeild var sett á fót innan embættisins sem hafði það að megin markmiði að ná niður umferðarhraða í umdæminu og fækka þar með umferðarslysum. Á Facebook síðu lögreglunnar er sagt frá árangrinum sem liggur í mikilli fjölgun í kærðum umferðalagabrotum og verulegri fækkun umferðaslysa, sem hvorugt á sér fordæmi.

Á síðunni segir að niðurstaða ársins sér ánægjuleg og að mjög vel hafi tekist til. Alls fjölgaði kærðum umferðarlagabrotum úr 3.054 árið 2017 í 7.332 árið 2018. Kærum vegna hraðaaksturs fjölgaði á sama tíma úr 2.797 í 6.874. Til en frekari samanburðar voru kærð hraðaakstursbrot árið 2016 alls 1.243 og árið 2015 samtals 811.

Ef skoðaðar eru tölur yfir umferðaróhöpp hefur aukið eftirlit skilað sér í fækkun slysa. Árið 2017 voru umferðarslys í umdæminu 171 en árið 2018 fækkaði þeim um tæp 26% og voru 136.

„Okkar lærdómur er sá að aukinn sýnileiki lögreglu á þjóðvegum í umdæminu auk öflugs hraðaeftirlits skili sér í auknu umferðaröryggi líkt og að var stefnt. Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur tekið ákvörðun um að efla þetta eftirlit en frekar á árinu 2019 og hefur lögreglumönnum í umferðardeild embættisins verið fjölgað og er það von okkar að hægt verði að ná enn betri árangri í fækkun umferðarslysa á því ári sem nú er að fara af stað,“ segir á Facebook síðu Lögreglunnar á Norðurlandi vestra.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga