Verðlaunahafar í yngri flokki. Ljósm: Grunnskóli Húnaþings vestra.
Verðlaunahafar í yngri flokki. Ljósm: Grunnskóli Húnaþings vestra.
Verðlaunahafar í eldri flokki. Ljósm: Grunnskóli Húnaþings vestra.
Verðlaunahafar í eldri flokki. Ljósm: Grunnskóli Húnaþings vestra.
Fréttir | 19. janúar 2019 - kl. 11:17
Söngvarakeppnin fór fram með glæsibrag

Árleg Söngvarakeppni Grunnskóla Húnaþings vestra fór fram í vikunni með glæsibrag. Þar stigu nemendur á stokk, hver öðrum betri og frambærilegri, með stórgóða skemmtun fyrir áhorfendur. Í yngri flokki sigraði Dagbjört Jóna Tryggvadóttir, Elvar Orri Sæmundsson varð í öðru sæti og Ísey Lilja Waage og Valgerður Alda Heiðarsdóttir í því þriðja. Þá fengu Dagbjört Jóna Tryggvadóttir og Einar Örn Sigurðsson verðlaun fyrir sviðsframkomu.

Í eldri flokki sigraði Jóhann Smári Reynisson sem einnig fékk verðlaun fyrir sviðsframkomu. Í öðru sæti var Ásdís Aþena Magnúsdóttir og í þriðja sæti var Anna Rakel Gunnarsdóttir.

Sagt er frá þessu á vef Grunnskóla Húnaþings vestra en þar segir einnig: „Það er ljóst að ekki þarf að hafa áhyggjur af framtíð menningar í Húnaþingi vestra þegar þessir nemendur taka við keflinu.“

Á vefnum fá þeir Valdimar, Guðmundur, Aðalsteinn, Hjörtur og Gunnar  sérstakar þakkir fyrir undirspilið, faglega leiðbeiningu og framsetningu á atriðum. „Það er ekki sjálfgefið að nemendur í grunnskóla fái svona metnaðarfullan stuðning frá blómlegu tónlistarlífi,“ segir á vef Grunnskóla Húnaþings vestra.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga