Fréttir | 14. febrúar 2019 - kl. 09:20
Kynning á Dreifnám í A-Hún.

Í dag klukkan 17:00, ætla Lee Ann Maginnis, umsjónarmaður dreifnáms í A-Hún., Margrét Helga Hallsdóttir, námsráðgjafi FNV, Þórdís Hauksdóttir, fræðslustjóri og fulltrúar frá nemendafélagi FNV kynna námsframboð, félagslíf og aðstöðu dreifnáms í A-Hún. og FNV.

Allir nemendur í 9. og 10. bekk í grunnskólum Austur-Húnavatnssýslu eru sérstaklega boðaðir til fundarins ásamt foreldrum eða forráðamönnum. 

Dreifnám í A-Hún. er samvinnuverkefni Félags- og skólaþjónustu Austur-Húnavatnssýslu og Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Markmið dreifnáms er að bjóða nemendum upp á nám í heimabyggð í eitt til tvö ár eftir grunnskóla.

Fundurinn fer fram í húsnæði dreifnámsins, Húnabraut 4, Blönduósi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga