Tilkynningar | 21. febrúar 2019 - kl. 09:02
Konur í Austur-Húnavatnssýslu athugið
Tilkynning frá HSN

Krabbameinsleit verður á heilsugæslustöðinni á Blönduósi dagana 27.-28. febrúar 2019. Þær konur sem fengið hafa boðunarbréf eða telja að kominn sé tími á skoðun eru eindregið hvattar til að bóka sér tíma í síma 4554100 alla virka daga milli kl. 9-15.

Hægt er á sjá inn á island.is - mínar síður-skimun, hvenær síðasta skoðun fór fram. Brjóstamyndataka er gerð á tveggja ára fresti frá 40 ára til 69 ára og leghálsstrok á þriggja ára fresti frá 23 ára til 69 ára.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga