Fréttir | 15. mars 2019 - kl. 10:03
Átt þú kannski milljónir?

Íslensk getspá leitar að milljónamæringum en þrír vinningshafar eiga enn eftir að gefa sig fram, að því er segir í tilkynningu. Vinningsmiðarnir voru seldir á í Dalbotni Seyðisfirði síðasta sumar, í Olís í Stykkishólmi í síðasta mánuði og í N1 á Egilsstöðum í byrjun þessa mánaðar. Íslensk getspá hvetur alla sem keyptu miða á þessum stöðum að skoða þá vel, þar gætu leynst vinningstölur.

Vinningsmiðarnir voru seldir á eftirfarandi stöðum:

Dalbotni á Seyðisfirði, útdráttur 7.júlí 2018
vinningur að upphæð 25.394.380 krónur
vinningstölur 2 – 9 – 24 – 25 – 35 / 19 (bónustala)

Olís Stykkishólmi, útdráttur 23. febrúar 2019
vinningur að upphæð 7.639.900 krónur
vinningstölur 5 – 6 – 12 – 29 – 31 / 11 (bónustala)

N1 Egilsstöðum, útdráttur 2. mars 2019
Vinningur að upphæð 4.088.690 krónur
vinningstölur 4 – 8 – 17 – 21 – 29 / 19 (bónustala)

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga