Fréttir | 16. mars 2019 - kl. 08:14
Firmakeppni Þyts í Þytsheimum

Hestamannafélagið Þytur heldur sína árlegu firmakeppni á morgun, sunnudaginn 17. mars og áætlað er að keppnin hefjist klukkan 14:00 í Þytsheimum. Keppt verður í fimm flokkum; polla, barna, unglinga, karla og kvennaflokki. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki nema í pollaflokki, þar fá allir keppendur viðurkenningu fyrir þátttöku.

Búningaverðlaun verða veitt í barna, unglinga, karla og kvennaflokki. Boðið verður upp á pylsur, bakkelsi, kaffi, kakó og djús á staðnum. Eins og fyrri ár verður skráning keppenda í firmakeppnina á staðnum og því gott að mæta stundvíslega.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga