Listakot Dóru à Vatnsdalshólum.
Fréttir | 21. mars 2019 - kl. 18:28
Dóra Sigurðardóttir í Vatnsdalshólum opnaði vinnustofu sína formlega um síðustu helgi og verður hún opin næstkomandi sunnudag milli klukkan 13 og 19. Í mars og apríl verður opið á miðvikudögum og sunnudögum frá klukkan 13-19 með þeirri undantekningu að lokað verður næstkomandi miðvikudag 27. mars. Sumaropnun verður auglýst síðar.
Í Listakoti Dóru er boðið upp á handmáluð kerti og kort, málverk, innrömmunarþjónustu og margt fleira sem listamaðurinn Dóra er að gera.