Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 13:56 0 0°C
Laxárdalsh. 13:56 0 0°C
Vatnsskarð 13:56 0 0°C
Þverárfjall 13:56 0 0°C
Kjalarnes 13:56 0 0°C
Hafnarfjall 13:56 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Pistlar | 21. mars 2019 - kl. 14:39
Blá fátækt í boði Bjarna
Eftir Guðjón S. Brjánsson

Hvers vegna hefur tafist hjá starfshópi um kjör eldri borgara sem standa höllum fæti, sem ráðherra skipaði í vor og var ætlað að skila tillögum fyrir 1. nóvember 2018, að skila tillögum sínum og hvenær er von á tillögum frá hópnum? 

Þessa spurningu lagði Ellert B. Schram fyrir félagsmálaráðherra þegar hann  tók sæti á Alþingi í nokkra daga fyrr á þessu ári, elsti þingmaðurinn til að setjast á þing í lýðveldissögunni. Hann lætur enn ekki deigan síga þrátt fyrir að vera kominn nokkuð við aldur.  Baráttumál hans eru kjör eldri borgara landsins. Á þingi hófst hann þegar handa, flutti ræður, sendi skriflega fyrirspurn til félags- og barnamálaráðherra og spurði fjármálaráðherra, Bjarna Benediktsson spjörunum úr. Einmitt þennan sama Bjarna sem hefur ýmist verið forsætisráðherra eða fjármálaráðherra mörg undanfarin ár og hefur ítrekað, bæði skriflega og opinberlega lofað eldri borgurum bættum hag, staðfastlega frá árinu 2013. 

Það þarf ekki að tíunda hér að íslenskt samfélag hefur búið við sögulegt góðæri allt þetta tímabil og efnahagslegt svigrúm því verið umtalsvert. Engar efndir hafa hins vegar orðið og á íslensku máli heita þetta ekkert annað en svik. Í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar eru sömu loforðin gefin, að bæta hag þeirra eldri borgara sem höllustum fæti standa. 

Frekar en ekkert, þá skipaði félags- og barnamálaráðherra einn starfshópinn enn fyrir ári síðan. Verkefnið var að afla sér þekkingar og upplýsinga um kjör aldraðra og jafnvel koma með tillögur um úrbætur.  þetta var hrein tímaeyðsla, því það lágu þegar fyrir ítarlegar upplýsingar um stöðu okkar lakast settu eldri borgara. Þetta er einfaldlega sá hópur sem nýtur eingöngu greiðslna almannatrygginga og engra eða lítilla greiðslna úr lífeyrissjóði, þeir sem búa í leiguhúsnæði og þeir sem hafa takmörkuð réttindi í almannatryggingakerfinu á Íslandi vegna búsetu erlendis. 

Í svari ráðherra við fyrirspurn Ellerts kom harla lítið fram annað en að Skýrsla starfshóps um kjör aldraðra lægi fyrir. Í skýrslunni er staðfest að hlutfall þeirra aldraðra á bilinu 65–74 ára sem eru undir lágtekjumörkum sé um 8% á Íslandi. Alls eru því um 3000 einstaklingar á landinu 65 ára og eldri sem hafa tekjur undir fátæktarmörkum, sennilega þó mun fleiri. 

Í þessum hópi eru einstaklingar sem lifa við mikinn kvíða, vanlíðan og skert lífsgæði, verða að neita sér um að leita heilbrigðisþjónustu, geta ekki leyst út lyf sín og eiga stundum ekki fyrir mat í lok mánaðar. Vandi þeirra sem búa í leiguhúsnæði á ótryggum og uppsprengdum markaði kemur síðan í ofanálag. Við aðstæður þar sem vonleysið eitt blasir við er hætta á að andleg og líkamleg heilsa gefi eftir og að ótímabær og kostnaðarsöm úrræði verði þrautalendingin, þ.e. stofnanavistun.

Fram hefur komið í samtölum við forráðamenn samtaka aldraðra að dæmi séu um algjöra uppgjöf í hópi aldraðra. Engin merki sjást þó enn um frumkvæði ríkisstjórnarinnar til þess að stíga einhver skref til móts við blásnautt, aldrað fólk á Íslandi. Er nema von að spurt sé hvaða áform fjármálaráðherra og ríkisstjórnin hafi varðandi aldrað fólk sem er á vonarvöl og hvort ný fimm ára fjármálaáætlun sem verður lögð fram á næstu dögum muni endurspegla áform um að kjörum allra eldri borgara verði þokað upp fyrir fátæktarmörk.

Höf. rzg
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:33
Húnahornið óskar Húnvetningum sem og landsmönnum öllum gleðilegs sumars. Takk fyrir veturinn.
Glaðheimar
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:30
Frá sóknarnefnd
Aðalsafnaðarfundur Þingeyrasóknar verður haldinn í Klausturstofu mánudaginn 29. apríl nk. klukkan 20:00. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður m.a. rætt um viðhald og lýsingu í kirkjugarði og sumaropnun kirkjunnar. Það er ósk okkar að sem flestir mæti og taki þátt í umræðum um kirkjuna okkar og annað það sem betur má fara í kirkjulegu starfi.
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 00:30
Hljómsveitin Löður ásamt listamanninum Balduuuuur.
Ungmennafélagið Hvöt og Hljómsveitin Löður ásamt listamanninnum Balduuuuur hafa gefið út stuðningsmannalagið Áfram Hvöt. Lag og texti eru eftir Einar Örn Jónsson sem vart þarf að kynna fyrir íbúum Húnabyggðar. Þá syngur Baldur Einarsson, sonur Einars Arnar, lagið. Útsetning lagsins var í höndum þeirra beggja.
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 24. apríl 2024 - kl. 11:19
Góð þátttaka var á vinnustofu um gerð loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum sem haldin var á Hvammstanga nýverið. Það voru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem stóðu fyrir vinnustofunni í samstarfi við KPMG. Á vef SSNV kemur fram að áhugaverðar umræður hefðu skapast og ljóst sé að það er bjart yfir fólki þegar vorar, enda sé bjart framundan fyrir svæðið.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 18:37
Hátíðarhöld í tilefni sumardagsins fyrsta á Hvammstanga í ár verða enn fjölbreyttari en áður. Hátíðin er haldin af Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra í samstarfi við Hestamannafélagið Þyt og hefst með ókeypis sirkussýningu í Þytsheimum klukkan 12:00, fimmtudaginn 25 apríl. Síðan verður haldið upp á sumardaginn fyrsta á hefðbundinn hátt með skrúðgöngu frá Reiðhöllinni Þytsheimum klukkan 14:00.
Bréf Margrétar á Hóli
Bréf Margrétar á Hóli
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 16:59
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
Stjórnarherrar landanna höfðu í aldanna rás lengstum ekki mikil afskipti af þegnum sínum, létu sér nægja að hirða af fólki hluta af þeim arði sem það framleiddi og krafði svo með nokkuð jöfnu millibili hluta af karlpeningnum til þjónustu í herjum sínum til vígaferla og ránsferða. Auk þess höfðu stjórnvöld mikinn áhuga á að segja fólki á hvað það skyldi trúa. Heilbrigðismál, skólamál og félagsþjónusta komu lítið inn á borð stjórnarherranna en var á vegum einstaklinga og ættmenna, kirkjunnar og, a.m.k. á Íslandi, hreppa.
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 11:58
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Á miðvikudegi þann 8. maí, boðum við aðalfund Sögufélagsins Húnvetnings, kl. 15, þ.e. á nóni í Bóka- og skjalasafninu Blönduósi. Þar munu þau Svala skjalavörður Runólfsdóttir og Benedikt Blöndal segja frá og sýna okkur árangur starfs þeirra hjóna við að safna upplýsingum um minnismerki í Austur-Húnavatnssýslu síðustu misserin. Einnig mun Hjalti Pálsson sagnfræðingur koma til okkar á fundinn og segja okkur frá upphaflegum tillögum og umræðu sem leiddu til þess stórvirkis sem Byggðasaga Skagfirðinga varð í höndum hans.
Mynd: vedur.is
Mynd: vedur.is
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 21:12
Gular veðurviðvaranir taka gildi á morgun allt frá Breiðafirði, um Vestfirði, allt Norðurland og austur á firði, vegna talsverðrar rigningar og asahláku á morgun og fram á aðfaranótt sunnudags. Á vef Veðurstofunnar segir að vegna ört hækkandi hitastigs megi búast við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikilvægt sé að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið