Pistlar | 12. apríl 2019 - kl. 10:37
Kjarni kærleikans
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Kjarni kærleikans er hjarta Guðs sem breytir refsingu í fyrirgefningu, vonleysi og myrkri í von og eilíft líf. Hann er ljósið í heiminum. Höfundur himins og jarðar, lífsins, kærleikans, vonarinnar og friðarins. Hann sem er ljósið sem blásið var á en logar nú blítt og yljar og vermir þeim sem í það leita.

Uppspretta lífsins

Kærleikans Guð vill nefnilega fá að veita okkur að teiga af lind hins sanna lífs sem aldrei tekur enda. Fá að dreypa af þeirri kærleikslind sem aldrei þornar upp. Er sí fersk, svalandi og lífgefandi. Hann býður okkur að nærast af sínu lífsins vatni og endurnærast svo við komumst af. Hann vill líka að við njótum þess að bera gefandi ávöxt í lífinu. Jafnvel margfaldan ávöxt, svo fleiri fái notið ávaxtanna sem hann vill prýða okkur með. Ávaxta sem blessa náungann og í umhverfinu. Ávaxta kærleika og vonar, fyrirgefningar og friðar.

Það er svo undursamlegt að fá að ausa án afláts af þeim lífsins brunni sem við flest þráum. Að teiga þakklát úr þeirri lind hjálpræðisins.

Leyndardómur

Kærleikurinn sem er æðstur allra dyggða er himneskur leyndardómur gjafar Guðs til mín og til þín. Við erum að tala um kærleiklann sem sér í þér og í mér eilífðar verðmæti. Kærleikann sem veitir þann frið sem enginn annar getur veitt. Kærleikann sem enginn skilur en allir mega og geta upplifað. Meðtekið, hvílt í og notið.

Með kærleikann sem á uppsprettu í hinni sönnu og eilífu lind lífsins að vopni, verður nefnilega allt eitthvað svo miklu ljúfara, áhyggjulausara, notalegra, þægilegra og betra. Þá tökum við að sjá okkur sjálf og samferðamennina með augum hins lífgefandi kærleika.

Í augum Guðs ert þú nefnilega ekki eitthvað sem var. Heldur verðmæti sem eru og munu verða. Sama hvað.

Algóður Guð býðst til að anda ferskum blæ kærleika síns á þig svo þú fáir notið og hreinlega komist af.

Látum því eftir okkur að elska okkur sjálf og hvert annað svo ljómi kærleikans fái stafað geislum sínum yfir okkur og allt okkar og þeirra sem á vegi okkar verða.

Með vonarríkri kærleiks- og friðarkveðju og þakklæti fyrir að fá að vera með.

Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga