Tilkynningar | 16. apríl 2019 - kl. 19:46
Sumarstörf hjá Blönduósbæ
Tilkynning frá Blönduósbæ

Blönduósbær óskar eftir að ráða starfsfólk í sumarafleysingar og í framtíðarstarf við heimaþjónustu. Æskilegt er að viðkomandi hafi bílpróf og sé orðinn 25 ára. Vinnutími er samkomulag á milli þjónustuþega og starfsmanns.

Einnig óskar Blönduósbær eftir að ráða starfsfólk í sumarafleysingar við ræstingar á skrifstofu Blönduósbæjar. Vinnutími er eftir kl. 16:00 á daginn þrisvar sinnum í viku.

Um er að ræða hlutastörf sem eru tilvalin með annarri vinnu. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Blönduósbæjar í síma 455 4700. Umsóknir sendist á netfangið: blonduos@blonduos.is fyrir 30. apríl n.k.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga