Grunnskóli Húnaþings vestra
Grunnskóli Húnaþings vestra
Fréttir | 17. apríl 2019 - kl. 09:53
Góður íbúafundur um skólabyggingu

Alls mættu um 40 manns á íbúafund um fyrirhugaða viðbyggingu við Grunnskóla Húnaþings vestra og lóðarskipulag en hann var haldinn í Félagsheimili Hvammstanga í síðustu viku. Magdalena Sigurðardóttir og Gunnhildur Melsted, arkitektar hjá VA arkitektum kynntu viðbyggingu við skólann. Vinna við hönnun á innra skipulagi hefur verið í gangi frá áramótum og stendur nú yfir kynningarferli á tillögunni. Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra.

 Arnar Birgir Ólafsson hjá Teiknistofu Norðurlands kynnti deiliskipulag sem nú er í vinnslu fyrir skólareit frá leikskóla að íþróttahúsi. Fór hann yfir hugmyndir sem eru á teikniborðinu varðandi útfærslur á svæðinu s.s. staðsetningar leiktækja, gönguleiða og fl. Einnig greindi hann frá skemmtilegri vinnu grunnskólanemenda sem fengu það verkefni að setja á blað hugmyndir af leiktækjum og öðru sem þeim finnst að ætti heima á lóðinni sem verður svo notað áfram í hönnunarvinnunni.

 Tillöguteikning af viðbyggingu er til sýnis í þjónustuanddyri Ráðhússins, Hvammstangabraut 5, Hvammstanga. Þeir sem vilja koma með ábendingar geta sent þær á rafrænu formi í gegnum vef sveitarfélagsins til 25. apríl næstkomandi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga