Jón Þór Eyþórsson Ljósm: Blönduósbær
Fréttir | 17. apríl 2019 - kl. 21:38
Blönduósbær hefur ráðið Jón Þór Eyþórsson sem viðburðarstjóra fyrir Húnavöku 2019, en hann var valinn úr hópi ellefu umsækjenda sem sóttu um starfið, sem var auglýst í síðasta mánuði.
Í tilkynningu frá Blönduósbæ segir að Jón Þór hafi yfirgripsmikla reynslu á sviði, viðburðarstjórnunar, verkefnastýringar og markaðsmála, en hann mun sjá um undirbúning, skipulagningu dagskrár og framkvæmd fyrir Húnavöku 2019, sem nú er haldinn 18.-21. júlí, ásamt öðrum sem koma þurfi að málum.
Menningar-, íþrótta og tómstundanefnd Blönduósbæjar fagnar ráðningu viðburðarstjóra og vonast eftir góðu samstarfi við Jón Þór, og að Húnavaka 2019, verði eftirminnileg hátíð.