Ljósm: neisti.net
Ljósm: neisti.net
Fréttir | 19. apríl 2019 - kl. 09:16
Stórsýning austur-húnvetnskra hestamanna

Stórsýning austur-húnvetnskra hestamanna fer fram miðvikudaginn 24. apríl næstkomandi í Reiðhöllinni Arnargerði og hefst hún klukkan 18:00. Mörg góð hross munu koma fram og gleðja augað. Happdrættismiðar verða seldir á staðnum og eru veglegir vinningar í boði fyrir heppna miðakaupendur, einnig verða seldar veitingar á staðnum.

Aðgangseyrir er kr. 1.000. Athygli er vakin á því að enginn posi verður á staðnum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga