Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 00:30 0 0°C
Laxárdalsh. 00:30 0 0°C
Vatnsskarð 00:30 0 0°C
Þverárfjall 00:30 0 0°C
Kjalarnes 00:30 0 0°C
Hafnarfjall 00:30 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Nöldrið | 14. maí 2019 - kl. 09:48
Gleðilegt sumar

Gleðilegs sumars óska ég ykkur öllum og vonandi fáum við gott sumar eftir þennan góða vetur. Nú þegar hefur fólk hafist handa við að snyrta til á lóðum sínum, klippa runna og tré í görðum og raka saman lauf og rusl sem nóg er af í kringum okkur eftir veturinn. Undanfarin sumur hefur mér fundist snyrtilegt í bænum. Umgengni á opnum svæðum víðast hvar góð og einkalóðir flestar til fyrirmyndar. Það hefur ekki lítið að segja fyrir litlu bæjarfélögin á landsbyggðinni að þau séu snyrtileg og gestir sem okkur heimsækja sjái að hér búi fólk sem leggur metnað sinn í að bærinn sé snyrtilegur og vel sé um gengið.

Nú ættum við bæjarbúar að taka höndum saman um að gera snyrtilega bæinn okkar enn snyrtilegri og þá kem ég að árlegu nöldri okkar nöldraranna og skora, nú sem aldrei fyrr, á þá sem hér stjórna. Gerið eitthvað í að losa okkur við kerfilinn sem hér veður um allt og kæfir allan gróður sem á vegi hans verður áður en það verður of seint. Maður heyrir um sífellt fleiri bæjarfélög sem berjast með öllum ráðum við þennan ófögnuð og hann er víst ekkert lamb að leika sér við, fái hann að vaða svona uppi eins og hér hefur verið. Því miður hef ég ekki séð mikið gert hér til að losa okkur við þennan ófögnuð. Eða hafa margir orðið varir við Það?

Fyrir nokkrum dögum var borinn inn á heimilin í bænum einblöðungur frá fyrirtæki sem heitir Hrafnshóll ehf. og hyggst reisa hér fimm íbúða raðhús við Smárabraut, sé áhugi hjá heimamönnum. Taka þeir fram í auglýsingunni að um sé að ræða vandaðar fullbúnar íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum. Allt lítur þetta vel út, ætti að henta bæði ungum fjölskyldum með lítil börn og einnig eldra fólki sem vill minnka við sig húsnæði. Ekki skemmir fyrir að verðið er sanngjarnt og afhendingartími  skammur, ætti að vera hægt að flytja inn innan árs.

Að mínu mati er þó einn stór galli á þessum fyrirhuguðu íbúðum og það er að bílskúrana vantar. Þó framtíðin sé kannski bíllaus, er enn langt í það og margt annað en bílinn er hægt að geyma í bílskúrnum, t.d. sláttuvélina og garðverkfærin, grillið og garðhúsgögnin. Séu börn í fjölskyldunni fylgir þeim ýmislegt sem þarfnast geymslu innanhúss. Reiðhjól, skíði og skautar ásamt tilheyrandi fatnaði og svo ótal mörgu sem fylgir leikjum barna og sárt er að þurfa að láta þessa hluti standa úti vetrarlangt. Þetta bílskúrs- og geymsluleysi hefur löngum staðið íbúum raðhúsanna við Skúlabraut fyrir þrifum og valdið þeim óþægindum og af hverju að endurtaka mistökin.

Nú verð ég að játa að ég átti þess ekki kost að fara á fundinn sem Hrafnhóll bauð bæjarbúum að sækja, þar sem fulltrúi byggingaraðila mætti til að svara spurningum um þessa hugsanlegu byggingar og ætti því ekki að vera að tjá mig mikið um þessar framkvæmdir. En á þessum fundi hefur eflaust margt fróðlegt komið fram. Ég vona bara að af þessum byggingum verði, því þörfin er brýn og fólk almennt jákvætt fyrir húsum af þessu tagi. Þá má eflaust  með viðbótar kostnaði breyta teikningum þannig að pláss væri fyrir bílskúra.

Stórgóðan pistil las ég í Fréttablaðinu þar sem mál málanna, loftslagsmálin eru til umfjöllunar. Þar segir pistlahöfundum að það sé öllum ljóst hverjir eigi að vera þjakaðir af “flugskömm” Það sé skríllinn, ég og þú. Hin, þessi góðu sem sífellt séu að segja okkur frá loftslagsvandanum ætli ekki að fljúga neitt minna en áður. Sú sem stýrir umhverfisstofnun segir að starfsfólk hennar vilji endilega fljúga minna en ætla samt að fljúga meira á þessu ári en í fyrra en þá flugu starfsmennirnir 150 ferðir til útlanda. Og pistlahöfundum skammast sín því hann flaug ekki nema þrjár ferðir til útlanda á síðasta ári. Hann talar um  NATO-flugvélarnar sem spúa hér eldi og brennisteini við heræfingar yfir landinu í boði VG, og kallar sig skepnu og umhverfisóþverra eins og það óbreytta alþýðufólk sem leyfir sér að skreppa í langþráð frí til Tenerife þegar vetur sest að. Hann segir öfugmælavísnasmiðina sjá ofsjónum yfir því að almúginn leyfi sér helgarferð til Dublin eða Hamborgar  en vinni  svo markvisst að því að fjölga ferðamönnum hingað og getur sér þess til að líkleg eigi þeir að koma fótgangandi til landsins nema vonir séu bundnar við að hægt verði að koma þeim í gegnum sæstreng, en um það verði Alþingi að taka ákvörðun  en þar rekumst við á einhverja mestu hindrun sem til er. Gott dæmi þar um eru smálánafyrirtækin.

Mikil er öll þessi vitleysa og mál að linni.  Tökum vel á móti nýbúunum okkar, þau eiga skilið að finna að þau séu velkomin. Gleðilegt sumar enn og aftur

Kveðja Nöldri.

Höf. Nöldri
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 24. apríl 2024 - kl. 11:19
Góð þátttaka var á vinnustofu um gerð loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum sem haldin var á Hvammstanga nýverið. Það voru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem stóðu fyrir vinnustofunni í samstarfi við KPMG. Á vef SSNV kemur fram að áhugaverðar umræður hefðu skapast og ljóst sé að það er bjart yfir fólki þegar vorar, enda sé bjart framundan fyrir svæðið.
Glaðheimar
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 18:37
Hátíðarhöld í tilefni sumardagsins fyrsta á Hvammstanga í ár verða enn fjölbreyttari en áður. Hátíðin er haldin af Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra í samstarfi við Hestamannafélagið Þyt og hefst með ókeypis sirkussýningu í Þytsheimum klukkan 12:00, fimmtudaginn 25 apríl. Síðan verður haldið upp á sumardaginn fyrsta á hefðbundinn hátt með skrúðgöngu frá Reiðhöllinni Þytsheimum klukkan 14:00.
Bréf Margrétar á Hóli
Bréf Margrétar á Hóli
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 16:59
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
Stjórnarherrar landanna höfðu í aldanna rás lengstum ekki mikil afskipti af þegnum sínum, létu sér nægja að hirða af fólki hluta af þeim arði sem það framleiddi og krafði svo með nokkuð jöfnu millibili hluta af karlpeningnum til þjónustu í herjum sínum til vígaferla og ránsferða. Auk þess höfðu stjórnvöld mikinn áhuga á að segja fólki á hvað það skyldi trúa. Heilbrigðismál, skólamál og félagsþjónusta komu lítið inn á borð stjórnarherranna en var á vegum einstaklinga og ættmenna, kirkjunnar og, a.m.k. á Íslandi, hreppa.
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 11:58
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Á miðvikudegi þann 8. maí, boðum við aðalfund Sögufélagsins Húnvetnings, kl. 15, þ.e. á nóni í Bóka- og skjalasafninu Blönduósi. Þar munu þau Svala skjalavörður Runólfsdóttir og Benedikt Blöndal segja frá og sýna okkur árangur starfs þeirra hjóna við að safna upplýsingum um minnismerki í Austur-Húnavatnssýslu síðustu misserin. Einnig mun Hjalti Pálsson sagnfræðingur koma til okkar á fundinn og segja okkur frá upphaflegum tillögum og umræðu sem leiddu til þess stórvirkis sem Byggðasaga Skagfirðinga varð í höndum hans.
Mynd: vedur.is
Mynd: vedur.is
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 21:12
Gular veðurviðvaranir taka gildi á morgun allt frá Breiðafirði, um Vestfirði, allt Norðurland og austur á firði, vegna talsverðrar rigningar og asahláku á morgun og fram á aðfaranótt sunnudags. Á vef Veðurstofunnar segir að vegna ört hækkandi hitastigs megi búast við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikilvægt sé að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns.
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 20:56
Verkalýðsmálaráð Samfylkingarinnar boðar til málstofu um húsnæðis- og kjaramál, laugardaginn 20. apríl klukkan 09:00 í húsnæði stéttarfélagsins Samstöðu að Þverbraut 1 á Blönduósi. Frummælendur verða Þórarinn Sverrisson, formaður Öldunnar, stéttarfélags í Skagafirði, Ásgerður Pálsdóttir, fyrrverandi formaður Samstöðu og núverandi formaður Félags eldri borgara á Blönduósi og Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfjarða.
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 12:07
Sunnudaginn 28. apríl verða haldnir tónleikar í Blönduóskirkju þar sem kirkjukórinn mun syngja nokkur hugljúf vorlög undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner organista. Jafnframt mun Eyþór sýna snilli sína og leyfa okkur að heyra hvað orgelið hefur upp á að bjóða.
Helgi Haukur Helgason, framkvæmdastjóri Bríetar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Mynd. hunathing.is
Helgi Haukur Helgason, framkvæmdastjóri Bríetar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Mynd. hunathing.is
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:37
Húnaþing vestra og Leigufélagið Bríet hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu leiguíbúða í Húnaþingi vestra. Í yfirlýsingunni lýsa aðilar yfir vilja til samstarfs um uppbyggingu leiguíbúða í sveitarfélaginu auk þess sem Húnaþing vestra leggur til íbúðir í sinni eigu í gegnum svokölluð yfirtökuverkefni. Viljayfirlýsing þessi kemur til viðbótar samkomulagi sem undirritað var á dögunum milli innviðaráðuneytis, Húnaþings vestra og HMS um uppbyggingu allt að 50 íbúða til sölu og leigu á næstu fimm árum.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið