Keppendur að keppninni lokinni. Ljósm. mtr.is.
Fréttir | 25. maí 2019 - kl. 08:38
Sigraði à stærðfræðikeppni 9. bekkinga
Úrslit í stærðfræðikeppni Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Menntaskólans á Tröllaskaga og níundu bekkja í grunnskólum á Norðurlandi vestra og Tröllaskaga fór fram í Ólafsfirði á fimmtudaginn. Keppnin var jöfn og spennandi og allir keppendur voru sjálfum sér og skólum sínum til sóma. Hjalti Freyr Magnússon úr Grunnskóla Húnaþings vestra sigraði keppnina en hún hefur verið haldin í 22 ár.
Þorsteinn Jakob Klemensson í Dalvíkurskóla varð í öðru sæti og Jóhann Gunnar Eyjólfsson í Árskóla í þriðja sæti. Að keppni lokinni fóru allir keppendur heim með smá glaðning en vegleg verðlaun voru veitt fyrir efstu þrjú sætin.