Fréttir | 10. júní 2019 - kl. 09:59
Ný heilbrigðisstefna kynnt

Efnt verður til opinna kynningarfunda um nýsamþykkta heilbrigðisstefnu til ársins 2030 í öllum heilbrigðisumdæmum landsins. Fyrsti fundurinn verður haldinn í Hofi á Akureyri 12. júní næstkomandi. Fjallað verður um hvað felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í þéttbýli eða í dreifðari byggðum landsins. Valdimar O. Hermannsson, sveitarstjóri Blönduósbæjar, tekur þátt í pallborðsumræðum á fundinum.

Heilbrigðisstefna – stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi 3. júní síðastliðinn. Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir að kallað hafi verið eftir stefnu í heilbrigðismálum hér á landi um árabil og hafi nokkrar atrennur verið gerðar að slíkri stefnumótun frá því að heilbrigðisáætlun, sem samþykkt var á Alþingi árið 2001, hafi runnið sitt skeið árið 2010. Samþykkt stefnunnar marki því tímamót.

Í  meginatriðum snýst heilbrigðisstefnan um um hvernig skapa megi heildstætt heilbrigðiskerfi fyrir alla landsmenn sem tryggir sjúklingum samfellda þjónustu á réttu þjónustustigi þar sem saman fara gæði, öryggi, skilvirkni og hagkvæmni. 

Fundurinn í Hofi 12. júní hefst kl. 17.00.

Dagskrá:

  • Kynning stefnunnar: Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra
  • Sýn forstjóra: Jón Helgi Björnsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands
  • Sýn forstjóra: Bjarni Jónasson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri

Að loknu erindi hvers frummælanda gefst fundargestum kostur á að beina til þeirra fyrirspurnum. Eftir stutt kaffihlé verða pallborðsumræður.

  • Pallborðsumræður: Þátttakendur í pallborði auk frummælenda verða María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, Valdimar O. Hermannsson, bæjarstjóri á Blönduósi og Elsa B. Friðfinnsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu.

Fundarstjóri verður Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri.

Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.

Athygli er vakin á því að streymt verður beint frá fundinum og verður streymið aðgengilegt á vef sjónvarpsstöðvarinnar N4, vef Stjórnarráðsins; www.stjr.is og á vefsvæði heilbrigðisráðuneytisins; www.hrn.is.

Nánari upplýsingar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030 á vef heilbrigðisráðuneytisins

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga