Fréttir | 17. júní 2019 - kl. 21:02
Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga leitar að drífandi einstaklingi til að annast daglegan rekstur sambandsins. Þar á meðal er samskipti við aðildarfélögin, skipulagning viðburða ásamt öðrum þeim verkefnum sem USVH stendur fyrir eða tekur þátt í. Starfið er hlutastarf um 20%. Umsóknarfrestur er til og með 30. júní næstkomandi. Umsóknir ásamt ferilskrá skal sendast á usvh@usvh.is.
Hæfniskröfur:
Áhugi á hreyfingu og félagsstarfi
Færni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði í starfi
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Almenn tölvukunnátta
Geta unnið sveigjanlegan vinnutíma
Gert er ráð fyrir því að nýr framkvæmdastjóri geti hafið störf í ágúst 2019.
Nánari upplýsingar veitir Reimar Marteinsson formaður USVH í síma 894-9939.