Félagsheimilið á Blönduósi
Félagsheimilið á Blönduósi
Fréttir | 15. júlí 2019 - kl. 09:43
Stórdansleikir í Félagsheimilinu um helgina

Haldnir verða tveir stór stórdansleikir í Félagsheimilinu á Blönduósi um Húnavökuhelgina sem framundan er. Föstudagskvöldið 19. júlí er stórdansleikur með hljómsveitinni Á móti sól og laugardagskvöldið 20. júlí er stórdansleikur með hljómsveitinni Skítamóral. Húsið opnar bæði kvöldin klukkan 23:00 og verða Húnavökutilboð á barnum. Aldurstakmar er 18 ára og aðgangseyrir er kr. 4.000. Forsala á dansleikina fer fram á föstudaginn í Félagsheimilinu frá klukkan 16-18.

BLÖ QUIZ verður einnig haldið í Félagsheimilinu í tengslum við Húnavöku og fer það fram fimmtudagskvöldið 18. júlí. Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjú sætin. Tónlist verður á fóninum og barinn opinn. Húsið opnar klukkan 20:30 og er frítt inn.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga