Fréttir | 15. ágúst 2019 - kl. 13:48
Mótum framtíð Norðurlands vestra

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra boðar til þriggja funda í landshlutanum í tengslum við vinnu við gerð nýrrar Sóknaráætlunar Norðurlands vestra. Fundirnir eru opnir öllum sem áhuga hafa á að hafa áhrif á stefnu svæðisins til ársins 2024. Unnið verður út frá fjórum málaflokkum; menningarmál, atvinnuþróun og nýsköpun, umhverfismál og menntamál og lýðfræðileg þróun.

Fundirnir verða haldnir á eftirtöldum stöðum:

Hótel Laugarbakka, 21. ágúst klukkan 12-14.
Eyvindarstofu á Blönduósi, 21. ágúst klukkan 17-19.
Félagsheimilinu Ljósheimum í Skagafirði, 22. ágúst klukkan 12-14.

SSNV hvetja sem flesta íbúa til að láta til sín taka, mæta og hafa þannig áhrif á framtíð landshlutans.

Sóknaráætlun Norðurlands vestra er stefnumótandi áætlun sem tekur til starfssvæðis sveitarfélaganna í landshlutanum. Nú er verið að móta stefnu fyrir árin 2020-2024.

 Upplýsingabæklingur um sóknaráætlun og þá vinnu sem stendur yfir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga