Tilkynningar | 21. ágúst 2019 - kl. 13:58
Iðja, Blönduósi óskar eftir starfsmanni

Iðja, heimilið við Skúlabraut á Blönduósi óskar eftir starfsmanni. Starfið er laust nú þegar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um framtíðarstarf er að ræða. Starfsheiti er Þroskaþjálfi eða iðjuþjálfi í málefnum fatlaðs fólks og er starfshlutfall 100%.

Starfsmaður hefur með höndum faglega yfirsýn á þjónustu við notendur. Hann vinnur m.a. að gerð einstaklings- og þjálfunaráætlana með notendum í samráði við yfirmann. Starfsmaður veitir notendum aðstoð við athafnir daglegs lífs, umönnun, þjálfun og afþreyingu ásamt öðrum verkefnum. Þátttaka í faglegri uppbyggingu, umsjón og skipulagningu á einstaklingsmiðaðri þjónustu í samstarfi við forstöðumann. Unnið er eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og valdeflingu.

Menntunarkrafa: Starfsréttindi sem þroskaþjálfi/iðjuþjálfi eða önnur háskólamenntun á sviði mennta-, félags- eða heilbrigðisvísinda. Gerð er krafa um bílpróf.

Hæfniskröfur: Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af starfi með fötluðu fólki. Leitað er eftir ábyrgðarfullum, jákvæðum og sveigjanlegum einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa með fötluðu fólki. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, umhyggju, lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og stundvísi. Hreint sakavottorð í samræmi við lög um málefni fatlaðs fólks.

Vinnutími: Dagvinna.

Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur: Umsóknarfrestur er til og með 29. ágúst 2019.

Nánari upplýsingar: Ari Jóhann Sigurðsson, forstöðumaður, arijohann@skagafjordur.is, 893-6673, 452-4960.

Umsóknir: Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá sem og afrit af prófskírteini og leyfisbréfi. Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skilað í gegnum íbúagátt sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Karlar, sem og konur, eru hvattir til að sækja um.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga