F.v.:Hulda Einarsdóttir, “lafur Stefánsson,Guðmundur Gíslason ,Guðný Þorsteinsdóttir, Sveinn Karlsson og Ína Björk Ársælsdóttir umhverfisstjóri. Ljósm: hunathing.is
F.v.:Hulda Einarsdóttir, “lafur Stefánsson,Guðmundur Gíslason ,Guðný Þorsteinsdóttir, Sveinn Karlsson og Ína Björk Ársælsdóttir umhverfisstjóri. Ljósm: hunathing.is
Fréttir | 22. ágúst 2019 - kl. 09:14
Umhverfisviðurkenningar í Húnaþingi vestra

Sveitarfélagið Húnaþing vestra veitt nýverið þrjár umhverfisviðurkenningar. Verðlaunin eru veitt árlega þeim aðilum sem þótt hafa verið til fyrirmyndar við fegrun lóða sinna. Nefnd vegna umhverfisviðurkenninga er skipuð af sveitarstjórn og heldur nefndin utan um valið ásamt Ínu Björk Ársælsdóttur umhverfisstjóra. Nefndina skipa Erla B. Kristinsdóttir, Birgir Þór Þorbjörnsson og Sólveig Hulda Benjamínsdóttir. Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra.

Að þessu sinni voru veittar þrjár viðurkenningar. Tveir heimilisgarðar, einn á Borðeyri og einn á Hvammstanga og einn sveitabær og/eða fyrirtækjarekstur.

Hlíðarvegur 22 á Hvammstanga fékk viðurkenningu fyrir snyrtilega og fallega einkalóð. Eigendurnir Guðmundur Gíslason og Margrét Jóhannesdóttir hafa hugað vel að umhirðu lóðarinnar sem ber þeim gott vitni um atorku og umhyggju fyrir fallegu umhverfi.

Lyngbrekka Borðeyri fékk viðurkenningu fyrir snyrtilega og fallega einkalóð. Eigendurnir Guðný Þorsteinsdóttir og Sveinn Karlsson hafa hugað vel að umhirðu lóðarinnar sem ber þeim gott vitni um atorku og umhyggju fyrir snyrtilegu umhverfi.

Reykir Hrútafirði fékk viðurkenningu fyrir snyrtilega landareign ásamt blómlega ræktun sumarblóma. Eigendurnir Hulda Einarsdóttir og Ólafur H. Stefánsson hafa hugað vel að landareign sinni og sumarblómaræktun sem ber þeim vott um atorku og umhyggju fyrir fallegu umhverfi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga