Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 11:28 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 11:28 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 11:28 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 11:28 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 11:28 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 11:28 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra er jafnan glaðbeittur og kampakátur stjórnmálamaður og tekur af ljúfmennsku í erindi sem að honum berast, þau eru ófá og af ýmsum toga. Sum eru alvarlegs eðlis, snerta einstaklinga með beinum og tilfinnanlegum hætti. Bið og tafir á efndum hafa því afleiðingar, stundum óafturkræfar, stundum persónulegar og hörmulegar. Önnur eru stefnumótandi og lýsandi fyrir áherslur, viðhorf, gildismat og hugmyndafræði ráðherra og hafa áhrif á stóra hópa í þjóðfélaginu.
Orðin tóm
Það hefur ekkert skort á orðaflaum ráðherrans og yfirlýsingar um þörf á aðgerðum hér og hvar og að markmið hans séu skýr, jafnvel háleit og viljinn einnig. Hver skýrslan rekur aðra, samantektir um þörf og aðkallandi málefni þar sem lausnir liggja þó oft giska ljósar fyrir. Orð eru bara ekki nóg. Almenningur fær iðulega á tilfinninguna að skipan starfshóps eða gerð skýrslu sé til þess eins að draga mál á langinn og koma sér hjá því að taka afstöðu, hefja aðgerðir. Með þessu vil ég þó ekki gera lítið úr vönduðum undirbúningi og faglegum vinnubrögðum í hverju máli. Þau atriði eiga alltaf við. Hins vegar þurfa orðum og yfirlýsingum, jafnvel kosningaloforðum að fylgja raunverulegar aðgerðir, að verkin tali. Nú er hrópað á efndir.
Tækifærin ekki notuð
Á undanförnum misserum höfum við Íslendingar búið við einstaka efnahagslega velsæld. Við jafnaðarmenn höfum leitast við að standa vaktina, skynjum nefnilega betur en margur að velferðin nær ekki til allra. Við höfum rætt um fátækt og misskiptingu í samfélaginu og raunhæfar leiðir til úrbóta. Stórir hópar barna, öryrkja og aldraðra búa við ósæmandi kjör sem er hneyksli fyrir velferðarsamfélag. Félagsmálaráðherra sem ber ábyrgð á málaflokknum telur að ríkur skilningur sé innan ríkisstjórnarinnar á aðstæðum þeirra hópa sem höllum fæti standa. Þetta er hrein skrumskæling, og fjálagafrumvarp fyrir komandi ár gefur engin fyrirheit um raunverulegar breytingar. Það blasir við að núverandi ríkisstjórn hefur ekki alvöru áhuga á að koma til móts við þá efnaminnstu, þá sem búa við fátækt á Íslandi. Þetta á jafnt við um ungar barnafjölskyldur, fólk með skerta starfsorku og þá hina eldri. Þetta sýna áherslur ríkisstjórnarinnar í verki, hún hefur fengið tækifærin og það þarf ekki vitnanna við.
Fátækastir aldraðra
Ég nefni hér bara eitt dæmi sem ég hef áður fjallað um. Það er sú hneisa sem snýr að 3000 öldruðum einstaklingum á Íslandi um þessar mundir. Þeim er gert að draga fram lífið á tryggingabótum sem eru undir viðurkenndum fátæktarmörkum. Ráðherra kvaðst vilja gera betur og skipaði starfshóp um málið i fyrra þótt býsna skýrt lægi fyrir hvert umfang vandans væri. Níu mánuðir eru liðnir frá því að skýrsla var lögð fram, ekkert bólar á viðbrögðum. Þessi skýrt afmarkaði og fátækasti hópur aldraðra lifir enn við niðurlægjandi kjör.
Engu svarað
Á vordögum lagði ég fram skriflega fyrirspurn til ráðherra á Alþingi í fjórum liðum um þetta mál og átti raunar von á skjótum svörum eða a.m.k. í samræmi við vinnureglur þingsins. Enn bólar ekkert á svörum og það er kannski ekki undarlegt að á hugann leiti yfirlýsingar stjórnarflokkanna fyrir kosningar um áherslur í velferðar- og heilbrigðismálum. Þar stendur nú ekki steinn yfir steini. Nú á miðju kjörtímabili má þeim sem höllustum fæti standa í samfélaginu vera ljóst hvert stefnir. Ríkisstjórn Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna ætlar ekki að einhenda sér í breytingar á þeirra kjörum. Nýtt fjárlagafrumvarp, orðaflaumur, hástemmdar yfirlýsingar og tölulegar sjónhverfingar breyta því miður engu þar um.
Guðjón S. Brjánsson
alþingismaður
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 21:12
Gular veðurviðvaranir taka gildi á morgun allt frá Breiðafirði, um Vestfirði, allt Norðurland og austur á firði, vegna talsverðrar rigningar og asahláku á morgun og fram á aðfaranótt sunnudags. Á vef Veðurstofunnar segir að vegna ört hækkandi hitastigs megi búast við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikilvægt sé að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns.
|
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 20:56
Verkalýðsmálaráð Samfylkingarinnar boðar til málstofu um húsnæðis- og kjaramál, laugardaginn 20. apríl klukkan 09:00 í húsnæði stéttarfélagsins Samstöðu að Þverbraut 1 á Blönduósi. Frummælendur verða Þórarinn Sverrisson, formaður Öldunnar, stéttarfélags í Skagafirði, Ásgerður Pálsdóttir, fyrrverandi formaður Samstöðu og núverandi formaður Félags eldri borgara á Blönduósi og Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfjarða.
|
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 12:07
Sunnudaginn 28. apríl verða haldnir tónleikar í Blönduóskirkju þar sem kirkjukórinn mun syngja nokkur hugljúf vorlög undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner organista. Jafnframt mun Eyþór sýna snilli sína og leyfa okkur að heyra hvað orgelið hefur upp á að bjóða.
|
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:37
Húnaþing vestra og Leigufélagið Bríet hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu leiguíbúða í Húnaþingi vestra. Í yfirlýsingunni lýsa aðilar yfir vilja til samstarfs um uppbyggingu leiguíbúða í sveitarfélaginu auk þess sem Húnaþing vestra leggur til íbúðir í sinni eigu í gegnum svokölluð yfirtökuverkefni. Viljayfirlýsing þessi kemur til viðbótar samkomulagi sem undirritað var á dögunum milli innviðaráðuneytis, Húnaþings vestra og HMS um uppbyggingu allt að 50 íbúða til sölu og leigu á næstu fimm árum.
|
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:23
Árleg kökukeppni Undirheima, sem er félagsmiðstöð fyrir unglinga í Höfðaskóla, var haldin í gærkvöldi. Keppendur voru tólf talsins og voru tveir til þrír saman í hóp. Skreyta þurfti kökurnar á staðnum og höfðu keppendur 60 mínútur til þess að ljúka verkinu. Að því loknu valdi þriggja manna dómnefnd þrjú efstu sætin sem frumlegustu kökuna, besta bragðið og fallegustu kökuna. Að hennar sögn var valið ekki auðvelt. Sagt er frá þessu á vef Skagastrandar.
|
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 06:05
Lið Grunnskóla Húnaþings vestra er komið í úrslit Skólahreysti en keppt var í Laugardagshöll og sýnt beint á RÚV. Liðið stóð sig frábærlega og sigraði riðilinn sinn. Úrslitakeppnin fer fram 25. maí næstkomandi. Lið Grunnskóla Húnaþings vestra skipa þau Friðrik Hrafn Hannesson, Saga Ísey Þorsteinsdóttir, Victor Þór Sigurbjörnsson, Nóa Sophia Ásgeirsdóttir, Indriði Rökkvi Ragnarsson og Victoría Elma Vignisdóttir.
|
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 05:59
Viðbragðsaðilar á Norðurlandi vestra stefna á að halda hópslysaæfingu 11. maí næstkomandi. Hluti hópsins hittist á Blönduósi í fyrradag og æfðu viðbragð við flugslysi og rútuslysi, þar sem settar voru upp tvær borðæfingar. Æfingarnar eru undirbúningur fyrir stóru æfinguna í maí og er samvinna lykilinn að góðri útkomu, eins og segir á facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi vestra. „Samhæft viðbragð skilar betri þjónustu til borgaranna.“
|
Fréttir | 17. apríl 2024 - kl. 06:10
Sigríður Ỏlafsdóttir úr Húnaþingi vestra var endurkjörin formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi en ráðið hélt aðalfund sinn á Laugum í Sælingsdal um síðustu helgi. Á fundinum var samþykkt stjórnmálaályktun þar sem meðal annars er komið inn á að atvinnufrelsi og eignarréttur sé órjúfanlegur hluti frjáls samfélags og forsenda þess að hægt sé að tryggja jöfn tækifæri í landinu.
|
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 14:48
Tilkynning frá Háskólanum á Hólum
Háskólinn á Hólum hlýtur Byggðagleraugu Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fyrir framsækið og metnaðarfullt starf. Námið við háskólann er sértækt að því leyti að það byggir á traustum grunni fyrir mikilvægar framtíðar atvinnugreinar í samfélaginu þar á meðal íslenska hestinn, ferðaþjónustu í dreifbýli og fiskeldi, en skólinn hefur dregið til sín nemendur víðsvegar að úr heiminum. Í Háskólanum á Hólum er öflugt háskólastarf sem er í stöðugum vexti og nýsköpun.
|
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:32
Sveitarfélagið Skagaströnd heldur íbúafund í Fellsborg miðvikudaginn 17. apríl klukkan 17:00. Á dagskrá eru fjölmörg mál eins og staðan á hafnarframkvæmdum, breyting á námsstofu, sorpmál, vinnuskóli, gjaldskrár og kjarasamningar.
|
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:27
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir sóknarprestur í Skagafjarðarprestakalli hefur verið skipuð prófastur í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi. Hún tekur við af sr. Döllu Þórðardóttur á Miklabæ, sem lét af störfum 1. desember síðastliðinn. Frá þeim tíma hefur sr. Gísli Gunnarsson vígslubiskup á Hólum gegnt prófstsstörfum.
|
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:17
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra
Aðalfundur Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra verður haldinn miðvikudaginn 17. apríl 2024 klukkan 14:00 í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, skýrsla og tillögur ferðanefndar og margt fleira. Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri verður gestur fundarins. Kaffiveitingar að hætti kaffinefndar. Nýir félagar ávallt velkomnir.
|
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:13
Frá stjórn
Aðalfundur Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi verður haldinn í fundarsal HSB föstudaginn 26. apríl næstkomandi klukkan 16.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
|
Fréttir | 15. apríl 2024 - kl. 09:43
Knattspyrnulið Kormáks Hvatar mætti í Fífuna í Kópavogi í gær og spilaði gegn Augnabliki í 2. umferð Mjólkurbikarsins. Leikurinn fór fjörlega af stað og vel fyrir gestina því Papa Diounkou Tecagne skoraði fyrsta mark leiksins á 9. mínútu. Heimamenn voru ekki lengi að svara með marki á 13. mínútu og öðru marki á 31. mínútu. Staðan í hálfleik 2-1 fyrir Augnablik. Í seinni hálfleik voru skoruð fjögur mörk, þrjú af heimamönnum og einn af gestunum, en það gerði Kristinn Bjarni Andrason. Leikurinn endaði því 5-2 fyrir Augnablik.
|
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |