Fréttir | 11. september 2019 - kl. 09:00
Stóðsmölun og réttir í Skrapatungurétt
Tilkynning

Um næstu helgi fer fram stóðsmölun á Laxárdal og stóðréttir í Skrapatungurétt. Líkt og síðustu ár eru allir hjartanlega velkomnir en helgin er svo sannarlega stórhátíð heimamanna þar sem reiðmenn og aðrir gestir skemmta sér eins og þeim einum er lagið. Ferðamannafjallkóngur er enginn annar en Skarphéðinn Einarsson kórstjóri karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps með meiru og mun hann sjá um fararstjórn og leiðsögn ferðamanna í stóðsmöluninni.

Þeir gestir sem hafa áhuga á að slást í för með gangnamönnum á Laxárdal hafa þann kostinn á að leigja hesta hjá heimamönnum eða mæta með sína eigin en gjaldfrjáls nátthagi verður fyrir hross á Strjúgsstöðum (norðan afleggjara við veginn). Fyrir þá sem kjósa að taka ekki þátt í reiðinni sjálfri er bent á að Kirkjuskarðsrétt er í 40 mínútna akstursfjarlægð frá Blönduósi og Skrapatungurétt í aðeins um 15 mínútna akstursfjarlægð.

Dagskrá helgarinnar 14.-15. september nk.:

Laugardagurinn 14. september

9:30      Lagt af stað frá Strjúgsstöðum í Langadal
9:30      Lagt af stað frá Gautsdal
12:00    Áning í Kirkjuskarði. Kjötsúpa og fleiri veitingar til sölu (ath. enginn posi)
13:00    Bændafitness, Guðmundur Hallgrímsson stýrir bæjakeppni
15:30    Riðið af stað frá Kirkjuskarði
16:30    Stóðhrossin hvíld við Mánaskál. 30 mínútna stopp
17:00    Rekstur frá Mánaskál,
17:30    Stóðhross komin í nátthaga við Skrapatungurétt             
23:30    Réttardansleikur í Félagsheimilinu

Sunnudagurinn 15. september

11:00 Stóðréttir í Skrapatungurétt.

Veitingasala í réttarskúr á meðan réttarstörfum stendur

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga