Fréttir | 15. september 2019 - kl. 21:59
Byggðaráð Blönduósbæjar bókaði um samning um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra á síðasta fundi sínum

Byggðaráð Blönduósbæjar fundaði þann 12. september sl. og fjallaði þar m.a. um bókun byggðaráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar frá 9. september, sem fjallaði um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra.

Í fundargerð byggðráðs Blönduósbæjar stendur orðrétt: “Byggðaráð Blönduósbæjar harmar bókun byggðaráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar, frá 9. september s.l., um að enda það samstarf sem verið hefur í 20 ár á Norðurlandi vestra um málefni fatlaðs fólks, sérstaklega þar sem Sveitarfélagið Skagafjörður hefur í því samstarfi á síðustu árum verið svokallað “Leiðandi sveitarfélag" og því hefur stór hluti fagþekkingar og þjónustu verið byggður upp í Skagafirði.

Þá lýsir byggðaráð furðu sinni á því að ekki hafi verið látið reyna á nýjan samning, á milli þeirra sveitarfélaga sem lýst höfðu áhuga sínum á að halda samstarfinu áfram, á svipuðum forsendum og verið hefur. Blönduósbær mun leita leiðbeininga og álits Félagsmálaráðuneytis, vegna faglegrar umgjarðar á þjónustu við fatlað fólk á svæðinu og einnig til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um fjárhagslegar forsendur málsins”.

Forsaga málsins er sú að fyrr í sumar ákvað byggðarráð Húnaþings vestra að endurnýja ekki samning nokkurra sveitarfélaga um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra sem rennur út um næstu áramót. Varð þá strax ljóst að samningurinn yrði í uppnámi enda ákvað byggðarráð Svf. Skagafjarðar að draga sig einnig út úr samstarfinu. Taldi byggðarráðið farsælast að Sveitarfélagið Skagafjörður sinni málefnum fatlaðs fólks eingöngu innan sinna sveitarfélagsmarka þegar gildandi samningur rennur út.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga