Fréttir | 19. september 2019 - kl. 18:26
Auglýst eftir umsóknum um styrki

Blönduósbær auglýsir á vef sínum eftir umsóknum frá menningar-, æskulýðs-, íþrótta- og félagasamtökum sem hyggjast sækja um styrki vegna starfsemi sinnar á næsta ári. Umsækjendum er bent á að eyðublöð eru á vef Blönduósbæjar og að umsóknarfrestur er til 4. október næstkomandi. Lögð er áhersla á að við móttöku styrkja sé gerður samningur við sveitarfélagið þar sem samstarf er nánar skilgreint.

Styrkþegum sem þegið hafa styrki á þessu ári er bent á að skila þarf inn stuttri greinargerð um ráðstöfun styrkja. Nánari upplýsingar eru á umsóknareyðublaði.

Umsóknir skulu berast til:

Blönduósbær
b.t. bæjarstjóra
Hnjúkabyggð 33
540 Blönduós

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga