Horft til Vatnsness
Horft til Vatnsness
Fréttir | 20. september 2019 - kl. 10:33
Nýr Vatnsnesvegur gæti kostað 3,5 milljarða

Áætla má að kostnaður við að leggja nýjan veg með bundnu slitlagi um Vatnsnes kosti um 3,5 milljarða króna, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag. Vegurinn er reglulega í fréttum vegna þess hversu slæmur hann er og hvað hann veldur heimamönnum og ferðafólki miklum erfiðleikum. Bundið slitlag liggur frá hringveginum að Hvammstanga og fimm kílómetrum betur en þá eru 70 kílómetrar fyrir nesið að hringveginum á austanverðu nesinu.

Í Morgunblaðinu í dag er rætt við Gunnar H. Guðmundsson, svæðisstjóra Vegagerðarinnar á Akureyri en hann segir að tekist hafi á undanförnum árum að hafa gott malarslitlag á veginum. Ekki verði þó við náttúruöflin ráðið. Umferðin sé þing og ómögulegt að halda veginum við í rigningartíð. Um 400 bílar fara um Vatnsnes á sólarhring á sumrin og er þetta með umferðarþyngstu malarvegum á landinu.

Vegagerðin telur ekki fært að takmarka umferð um veginn. Þá þyrfti að velja hverjir fengju að aka um hann og hverjum ætti að snúa frá. Gunnar segir í samtali við Morgunblaðið að eina varanlega lausnin sé að byggja veginn upp og leggja á tvöfalt slitlag. Þurfi að styrkja veginn, breikka í 6,5 metra, rétta úr hlykkjum og jafna hæðir og lægðir. Gróf kostnaðaráætlun bendir til að heildarkostnaður gæti orðið um 3,5 milljarðar króna. Framkvæmdin er ekki á samgönguáætlun ríkisins. Heimamenn eru að þrýsta á um að hann komi inn við endurskoðun áætlunarinnar sem lögð verður fyrir Alþingi nú í haust.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga