Fréttir | 09. október 2019 - kl. 15:54
Haustslátrun gengur mjög vel á Blönduósi

Sauðfjárslátrun hófst í sláturhúsi SAH-Afurða á Blönduósi í byrjun síðasta mánaðar. Að sögn Gísla Garðarssonar sláturhússtjóra gengur slátrunin mjög vel. Áætlað er að slátra um 75-76 þúsund fjár sem er talsvert minna en í fyrra þegar slátrað var 90-100 þúsund fjár. Gísla segir að féð sé þokkalega vænt en þó séu lömbin nokkuð misjöfn. Meðalvigt lamba er rúmlega 16,66 kíló sem er um 300 grömmum minna en í fyrra. Um 115-118 manns starfa í sláturtíðinni á Blönduós, þar af koma rúmlega 100 starfsmenn erlendis frá, flestir frá Póllandi, Bretlandi, Ungverjalandi og Slóvakíu. Gísli segir að flestir hafi unnið í sláturtíð á Blönduósi áður. Áætlað er að sláturtíð ljúki 25. október næstkomandi.

Sláturhúsið á Blönduósi var byggt árið 1908 og hefur verið samfelld starfsemi síðan á þessu sviði, fyrst á vegum Sölufélags Austur-Húnvetninga og síðustu 13 ár á vegum SAH-Afurða. Slátrað er sauðfé úr Húnavatnssýslum og af svæði sem nær frá Kelduhverfi í austri til Dýrafjarðar í vestri, ásamt fé úr Borgarfirði, Dölum og Þingvallasveit.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga