Fréttir | 11. október 2019 - kl. 11:03
Auglýst eftir refaveiðimönnum

Húnaþing vestra auglýsir eftir refaveiðimönnum til starfa í sveitarfélaginu í vetur. Ráða á sex veiðimenn, einn á hvert svæði, sem eru Vatnsnes, Vesturhóp, Miðfjörður, Víðidalur, Hrútafjörður austan og Hrútafjörður vestan. Áhugasamir þurfa að skila inn umsóknum á skrifstofu Húnaþings vestra eigi síðar en 15. nóvember næstkomandi.

Í umsókn skal koma fram hvar umsækjandi ætlar að staðsetja skothús og stunda vetrarveiðar á ref. Ef umsækjandi ætlar að stunda veiðarnar utan eigin landareignar skal skriflegt leyfi landeigenda fylgja umsókninni. Húnaþing vestra hyggst gera skriflega samninga við þá veiðimenn sem úthlutað verður leyfum til vetrarveiða á ref. Í þeim samningi mun m.a. koma fram að kr. 8.000- verða greiddar fyrir hvert unnið dýr, að hámarki 17 dýr á hverju svæði. Skilyrði leyfisveitingar er að umsækjandi hafi gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af Umhverfisstofnun. Tekið er fram að einungis þeim er veitt verður leyfi til vetrarveiða á ref verður greitt fyrir unnin dýr.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga